Ólafía lék lokahringinn á pari

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. AFP

At­vinnukylf­ing­ur­inn Ólafía Þór­unn Krist­ins­dótt­ir lauk í dag keppni á Mar­at­hon Classic-mót­inu í Ohio  en mótið er hluti af LPGA-mótaröðinni, þeirri sterk­ustu í heimi.

Ólafía Þórunn lék lokahringinn í dag á 71 höggi eða á pari vallarins og lauk keppni á fimm höggum yfir pari. Hún er sem stendur í 76. sæti en margir kylfingar eiga eftir að ljúka leik.

Ólafía fékk fjóra fugla og fjóra skolla á lokahringnum en hún komst í gegnum niðurskurðinn á mótinu í fyrsta sinn á mótaröðinni á þessu tímabili.

Staðan á mótinu

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert