Haraldur Franklín í öðru sæti

Haraldur Franklín Magnús
Haraldur Franklín Magnús mbl.is/Kristinn Magnússon

Haraldur Franklín Magnús var í miklu stuði á öðrum hringnum á Lind­byt­vätten Masters- mót­inu í golfi í Svíþjóð í dag en mótið er hluti af Nordic Golf-mótaröðinni.

Haraldur Franklín lék hringinn í dag á sjö höggum undir pari og er samanlagt á tólf höggum undir pari og er í 2.-5. sæti. Hann fékk sex fugla, einn örn og einn skolla á hringnum.

Ekki gekk eins vel hjá Axel Bóassyni. Hann lék á einu höggi undir pari og er samanlagt á einu höggi yfir pari sem dugar honum ekki til að komast í gegnum niðurskurðinn.

Lokahringurinn á mótinu verður spilaður á morgun.

Staðan á mótinu

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert