Ólafur hetjan eftir ótrúlegan kafla (myndskeið)

Ólafur Andrés Guðmundsson.
Ólafur Andrés Guðmundsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ólafur Guðmundsson reyndist heldur betur hetjan hjá Kristianstad í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik eins og mbl.is greindi áður frá, en lokamínútur í leiknum gegn Malmö í kvöld voru magnaðar.

Malmö stal boltanum og jafnaði metin í 29:29 þegar sex sekúndur voru eftir. Þegar leiktíminn var runninn út fékk Kristianstad aukakast og úr því skoraði Ólafur með glæsilegu skoti sem tryggði sigurinn, 30:29.

„Ég reyndi bara að koma boltanum á markið og einhvern veginn fór hann inn. Ég get ekki útskýrt hvað ég er heppinn,“ sagði Ólafur við Aftonbladet, en hann bjargaði þarna 53. heimasigri liðsins í deildinni í röð.

Skiljanlega var fögnuðurinn innilegur, en lokamínúturnar má sjá hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert