Aron með Börsungum á ný

Aron Pálmarsson.
Aron Pálmarsson. Ljósmynd/twitter

Aron Pálmarsson sneri aftur inn í liði Barcelona eftir nárameiðsli þegar liðið vann öruggan sigur á Ademar León, 28:20, í spænsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld.

Aron skoraði eitt mark í leiknum en spænski landsliðsmaðurinn Valero Rivero var í stuði í kvöld en hornamaðurinn knái skoraði 11 mörk.

Með sigrinum náðu Börsungar 12 stiga forskoti á Ademar León í toppsæti deildarinnar. Barcelona er með 37 stig eftir 19 leiki en Ademar León er með 25 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert