Íslenska kvennalandsliðið í handbolta skipað leikmönnum 20 ára og yngri fór vel af stað í undankeppni heimsmeistaramótsins, en riðill Íslands er leikinn í Vestmannaeyjum. Ísland vann stórsigur á Makedóníu í dag, 35:20.
Staðan í hálfleik var 18:12, íslenska liðinu í vil. Ísland var svo mikið sterkari aðilinn og tryggði sér öruggan sigur í seinni hálfleik. Sandra Erlingsdóttir, leikmaður ÍBV var markahæst íslenska liðsins með sjö mörk.
Í hinum leik riðilsins hafði Þýskaland betur gegn Litháen, 34:16. Ísland og Þýskalands mætast kl. 16:00 á morgun, en efsta lið riðilsins tryggir sér sæti í lokakeppni heimsmeistaramótsins.