KA sigraði HK, 24:20, í fyrsta úrslitaleik liðanna um sæti í úrvalsdeild karla í handknattleik sem fram fór í KA-heimilinu á Akureyri í gær. Staðan í hálfleik var 12:10, KA-mönnum í hag.
Færeyski landsliðsmaðurinn Aki Egilsens skoraði 10 mörk fyrir KA, Sigþór Árni Heimisson 4 og Jón Heiðar Sigurðsson 3. Hjá HK var Kristján Ottó Hjálmsson atkvæðamestur með 6 mörk og Ingi Rafn Róbertsson skoraði 4.
Annar leikur liðanna fer fram í Digranesi á þriðjudagskvöldið en þrjá leiki þarf til að vinna einvígið og hreppa úrvalsdeildarsætið.