Hildigunnur samdi við Dortmund

Hildigunnur Einarsdóttir leikur með Borussia Dortmund í Þýskalandi á næsta …
Hildigunnur Einarsdóttir leikur með Borussia Dortmund í Þýskalandi á næsta keppnistímabili. mbl.is/Ómar Óskarsson

Hildigunnur Einarsdóttir, landsliðskona í handknattleik, hefur samið við þýska efstudeildarliðið Borussia Dortmund. Hún lék með Hypo í Austurríki síðasta vetur og varð m.a. meistari með liðinu í vor. 

Frá þessu er greint á heimasíðu félagsins en í viðtali við Morgunblaðið á dögunum sagði Hildigunnur að hún væri í samningaviðræðum við þýskt félagslið. 

Dortmund hafnaði í fjórða sæti þýsku 1.deildarinnar sem lauk á dögunum. 

Hildigunnur hefur átt sæti í íslenska landsliðinu á undanförum árum og á að baki tæplega 80 landsleiki. Hún hefur leikið í Noregi og í Þýskalandi auk Austurríkis á síðustu árum. Hún fór til Hypo í Austurríki fyrir ári eftir að þýska liðið Leipzig sem hún lék með varð gjaldþrota. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert