Elvar æfir með Stuttgart

Elvar Ásgeirsson í leik með Aftureldingu.
Elvar Ásgeirsson í leik með Aftureldingu. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari

Handboltamaðurinn Elvar Ásgeirsson, leikmaður Aftureldingar, mun æfa með þýska liðinu Stuttgart á næstu dögum samkvæmt heimildum Vísis

Elvar hefur leikið mjög vel með Aftureldingu á tímabilinu til þessa og skorað 40 mörk í fyrstu sjö leikjunum í Olísdeildinni. Hann er 24 ára og hefur leikið með Aftureldingu allan ferilinn. 

Stuttgart er í tíunda sæti efstu deildar Þýskalands með níu stig eftir ellefu leiki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert