Leik ÍBV og HK frestað

Leikur ÍBV og HK sem fara átti fram í Vestmannaeyjum …
Leikur ÍBV og HK sem fara átti fram í Vestmannaeyjum í dag hefur verið frestað til morguns. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Leik ÍBV og HK í úrvalsdeild kvenna í handknattleik, Olísdeildinni, sem fara átti fram í Vestmannaeyjum í dag klukkan 14 hefur verið frestað. Ástæðan fyrir frestun leiksins er ólík ferðaáætlun félaganna til Vestmannaeyja segir í tilkynningu frá HSÍ.

Leikmenn HK ætluðu að ferðast með flugi í leikinn en ekki er flogið til Eyja í dag vegna veðurs. Leikurinn mun fara fram á morgun, sunnudaginn 8. desember, og hefst hann klukkan 14. Þá mun leikur ÍBV og Fram í Olísdeild karla hefjast klukkan 16 líkt og til stóð þar sem Framarar sigla með Herjólfi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert