Tveir nýliðar í íslenska landsliðshópnum

Elín Klara Þorkelsdóttir er nýliði í íslenska landsliðinu.
Elín Klara Þorkelsdóttir er nýliði í íslenska landsliðinu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Arnar Pétursson þjálfari kvennalandsliðsins í handbolta hefur valið 20 manna hóp fyrir leikina tvo gegn Ísrael í forkeppni heimsmeistaramótsins sem fara fram hér á landi dagana 5. og 6. nóvember.

Leikirnir fara fram á Ásvöllum í Hafnarfirði en á undan, dagana 29. og 30. október, verða leiknir tveir vináttulandsleikir við Færeyinga í Færeyjum.

Tveir nýliðar eru í hópnum, Ethel Gyða Bjarnasen markvörður úr HK og Elín Klara Þorkelsdóttir leikstjórnandi úr Haukum. Þær voru báðar í U18 ára landsliði Íslands fyrr á þessu ári. Þórey Rósa Stefánsdóttir úr Fram og Rut Jónsdóttir úr Þór/KA eru reyndustu leikmennirnir í hópnum með 113 og 108 landsleiki.

Hópinn skipa etirtaldir leikmenn:

Markverðir:
Ethel Gyða Bjarnasen, HK (0/0)
Hafdís Renötudóttir, Fram (36/1)
Sara Sif Helgadóttir, Valur (3/0)

Aðrir leikmenn:
Aldís Ásta Heimisdóttir, Skara HF (4/2)
Andrea Jacobsen, EH Aalborg (31/30)
Berglind Þorsteinsdóttir, HK (10/5)
Díana Dögg Magnúsdóttir, Sachsen Zwickau (32/32)
Elín Klara Þorkelsdóttir, Haukar (0/0)
Hildigunnur Einarsdóttir, Valur (90/101)
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, Skara (3/7)
Lovísa Thompson, Ringköbing (22/66)
Perla Ruth Albertsdóttir, Fram (24/30)
Rakel Sara Elvarsdóttir, Volda (5/4)
Rut Arnfjörð Jónsdóttir, KA/Þór (108/233)
Sandra Erlingsdóttir, Metzingen (12/36)
Steinunn Björnsdóttir, Fram (38/34
Sunna Jónsdóttir, ÍBV (67/53)
Thea Imani Sturludóttir, Valur (54/83)
Unnur Ómarsdóttir, KA/Þór (38/46)
Þórey Rósa Stefánsdóttir, Fram (113/330)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert