Leik Harðar og ÍBV frestað

Daníel Wale Adeleye, leikmaður Harðar Ísafirði.
Daníel Wale Adeleye, leikmaður Harðar Ísafirði. mbl.is/Óttar Geirsson

Leik Harðar og ÍBV sem átti að fara fram í Olísdeild karla á Ísafirði í dag hefur verið frestað.

Leikurinn átti að vera sá fyrsti í deildinni eftir heimsmeistaramótið í Svíþjóð og Póllandi en fyrr í vetur var honum frestað vegna þátttöku ÍBV í Evrópukeppni.

Ófært er með flugi til Ísafjarðar í dag og því hefur leiknum verið frestað á nýjan leik. Áhugafólk um Olísdeild karla þarf því að bíða eitthvað lengur eftir því að deildin hefjist á ný

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert