Markahæstur hjá meisturunum

Sigvaldi Björn Guðjónsson.
Sigvaldi Björn Guðjónsson. Ljósmynd/EHF

Sigvaldi Björn Guðjónsson, fyrirliði Noregsmeistara Kolstad, fór fyrir sínum mönnum þegar liðið lagði Drammen að velli, 28:23 í öðrum leik liðanna í undanúrslitum norska karlahandboltans í Drammen í dag.

Kolstad vann þar með einvígið 2:0 og mætir annað hvort Elverum eða Arendal í úrslitum.

Sigvaldi Björn var markahæstur allra í leiknum með sjö mörk fyrir Kolstad.

Róbert Sigurðarson komst ekki á blað hjá Drammen og stóð vaktina mestmegnis í vörninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert