Kennari frá N-Sjálandi dæmir hjá Íslandi

Matthew Conger.
Matthew Conger. AFP

Matthew Conger frá Nýja-Sjálandi dæmir leik Íslendinga og Nígeríumanna sem eigast við í D-riðli á heimsmeistaramótinu á Volgograd Arena á morgun.

Gonger er 39 ára gamall kennari og er á meðal þeirra 36 dómara sem dæma á heimsmeistaramótinu í Rússlandi. Hann hefur dæmt í úrslitakeppnum HM U20 ára liða 2015 og 2017 og þá dæmdi hann viðureign Nígeríu og Svíþjóðar á Ólympíuleikunum í Ríó þar sem Nígeríumenn höfðu betur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert