Stevanovic hættur í landsliðinu

Ivan Stevanovic.
Ivan Stevanovic. AFP

Ivan Stevanovic, markvörður króatíska landsliðsins í handknattleik sem mætti Íslendingum í riðlakeppninni á HM, hefur ákveðið að leggja landsliðsskóna á hilluna.

Stevanovic er 37 ára gamall og var aldursforseti króatíska landsliðsins á heimsmeistaramótinu. Hann leikur með Kadetten Schaffhausen í Sviss.

„Þetta er komið nóg og það er kominn tími til að yngri leikmenn fái tækifæri með landsliðinu,“ segir Stevanovic í viðtali við vefinn handball-planet en hann vann til bronsverðlauna með Króötum á Evrópumótinu árið 2016.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert