Ómar Ingi: Getur verið önugur á köflum

„Ég fíla borgina mjög vel,“ sagði Ómar Ingi Magnússon, leikmaður ís­lenska karlalandsliðsins í handknattleik, í Sonum Íslands, vefþætti mbl.is.

Ómar Ingi, sem er 25 ára gamall, er samningsbundinn Magdeburg í Þýskalandi en hann gekk til liðs við félagið frá Aalborg í Danmörku sumarið 2020.

„Það tók mig smá tíma að venjast henni en þetta er mjög huggulegt hérna,“ sagði Ómar Ingi.

„Ég fíla Þjóðverjann ágætlega. Hann getur verið önugur á köflum en það er allt í góðu,“ bætti Ómar Ingi við í léttum tón.

Ómar Ingi er í aðalhlutverki í öðrum þætti af Sonum Íslands en hægt er að horfa á þátt­inn í heild sinni með því að smella á hlekk­inn hér fyr­ir ofan eða inni á heimasíðu þáttanna sem má nálgast hér.

Aron Pálmarsson og Ómar Ingi Magnússon á hliðarlínunni á HM.
Aron Pálmarsson og Ómar Ingi Magnússon á hliðarlínunni á HM. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert