Sárir Esjumenn neituðu að klára leikinn

Frá leik Bjarnarins og Esju í kvöld.
Frá leik Bjarnarins og Esju í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Íslandsmeistarar Esju gengu af velli þegar rúm mínúta var eftir af leik þeirra gegn Birninum í Hertz-deild karla í íshokkí í kvöld. Esjumenn voru ansi ósáttir við dómarana í stöðunni 3:1 fyrir Birninum og ákváðu þeir að yfirgefa svæðið í mótmælum sínum. 

Daniel Kolar var sérstaklega ósáttur og þurftu samherjar og dómarar að halda aftur af honum undir lok leiksins. Svo virtist sem hann hafi fellt einn dómara leiksins undir lokin og brugðist illa við dómi sem fylgdi. Mikil slagsmál brutust út er skammt var eftir af leiknum og fengu fimm leikmenn brottvísun í kjölfarið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert