Le Bron James og félagar í Cleveland Cavaliers náðu að svara fyrir sig og jafna metin í 2:2 gegn Indiana Pacers með því að vinna fjórða leik liðanna í fyrstu umferð úrslitakeppni NBA í körfubolta í nótt í Indianapolis, 104:100, eftir tvísýna baráttu.
Indiana gerði sig líklegt til að vinna leikinn og komast í 3:1 sem hefði verið afar snúin staða fyrir lið Cleveland, sem þrátt fyrir miklar sviptingar í vetur hefur verið talið líklegt til að komast enn og aftur í úrslitaeinvígið um titilinn.
LeBron skoraði 32 stig í nótt, tók 13 fráköst og átti 7 stoðsendingar. Kyle Korver skoraði 18 stig. Myles Turner og Victor Oladipo gerðu 17 stig fyrir Indiana og Thaddeus Young tók 16 fráköst.
Washington Wizards jafnaði metin í 2:2 gegn Toronto Raptors með sigri á heimavelli, 106:98. Bradley Beal skoraði 31 stig fyrir Washington og John Wall skoraði 27 og átti 14 stoðsendingar. DeMar DeRozan skoraði 35 stig fyrir Austurdeildarmeistara Toronto og Kyle Lowry gerði 19.