Þorsteinn Finnbogason í Breiðablik

Þorsteinn Finnbogason er kominn í Kópavoginn og mun leika með …
Þorsteinn Finnbogason er kominn í Kópavoginn og mun leika með Breiðabliki á næstu leiktíð. mbl.is/Golli

Þorsteinn Finnbogason er genginn til liðs við Breiðablik og mun spila með liðinu í úrvalsdeild karla í körfuknattleik á næstu leiktíð en það er Karfan.is sem greinir frá þessu. Þorsteinn kemur til Breiðabliks frá Grindavík þar sem hann lék á síðustu leiktíð.

Hann hefur spilað með bæði Grindavík og Haukum á ferlinum en hann var í lykilhlutverki hjá Grindavík þegar liðið lék til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn gegn KR árið 2017. Hann skoraði 7 stig, tók 3 fráköst og gaf eina stoðsendingu að meðaltali í leik á síðustu leiktíð með Grindavík. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert