Stjarnan harðlega gagnrýnd

Danielle Rodriguez í leik með Stjörnunni á síðustu leiktíð en …
Danielle Rodriguez í leik með Stjörnunni á síðustu leiktíð en hún gekk til liðs við KR eftir að kvennalið Stjörnunnar dró sig úr keppni í úrvalsdeild kvenna. mbl.is/Árni Sæberg

Körfuknattleiksdeild Stjörnunnar samdi í gær við landsliðsmanninn Gunnar Ólafsson. Gunnar skrifaði undir þriggja ára samning við bikar- og deildarmeistara Stjörnunnar en liðið er til alls líklegt í ár. Stjarnan vann stórsigur gegn Íslandsmeisturum KR í síðustu umferð úrvalsdeildarinnar og situr í efsta sæti deildarinnar með 14 stig eftir níu leiki, líkt og Keflavík og Tindastóll.

Í lok ágúst tilkynnti Stjarnan að félagið hefði ákveðið að draga kvennalið sitt úr keppni í úrvalsdeild kvenna. Mikill stígandi hafði verið í kvennastarfinu í Garðbæ, undanfarin ár, og fór Stjarnan meðal annars í bikarúrslit á síðustu leiktíð þar sem liðið tapaði fyrir þreföldum meisturum Vals. Þá fór Stjarnan í undanúrslit Íslandsmótsins þar sem liðið féll úr keppni eftir oddaleik gegn Keflavík í Keflavík.

Þar sem nokkuð vant­ar upp á að Stjarn­an geti skipað liðið með upp­öld­um Stjörnu­leik­mönn­um væri eina úrræði Stjörn­unn­ar að fá er­lenda leik­menn, eða leik­menn frá öðrum liðum, í þeirra stað. Stjórn Kkd. Stjörn­unn­ar met­ur það svo að heppi­legra sé að hlúa bet­ur að yngri iðkend­um Stjörn­unn­ar og leggja grunn að liði sem gæti spilað í úr­vals­deild inn­an fárra ára,“ sagði í til­kynn­ing­u sem Stjarnan sendi frá sér 22. ágúst síðastliðinn.

Ragna Margrét Brynjarsdóttir lagði skóna á hilluna síðasta sumar.
Ragna Margrét Brynjarsdóttir lagði skóna á hilluna síðasta sumar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Góða grínið sem það var“

Vefsíðan Fúsíjama.TV tók saman áhugaverða tölfræði í gær. Þar kemur fram að af níu af mínútuhæstu leikmönnum liðsins í úrvalsdeild karla í vetur eru sjö þeirra aðkomumenn. Gunnar Ólafsson bætist svo við þennan hóp og má fastlega gera ráð fyrir því að hann sé ekki mættur í Garðabæinn til þess að sitja á bekknum. Hér fyrir neðan má sjá hvernig mínútufjöldinn hefur dreifst á leikmenn Stjörnunnar en Fúsíjama.TV tók saman.

  • Nikolas Tomsick – Bandaríkin – 31:29 mín.
  • Jamar Akoh – Bandaríkin – 30:30 mín.
  • Ægir Þór Steinarsson – Fjölnir – 30:27 mín.
  • Kyle Johnson – England – 30:09 mín.
  • Tómas Hilmarsson – Stjarnan – 27:53 mín.
  • Hlynur Bæringsson – Grundafjörður – 27:45 mín.
  • Arnór F. Guðmundsson – Fjölnir – 19:50 mín.
  • Dúi Þór Jónsson – Stjarnan – 08:29 mín.
  • Ágúst Angatýsson – KFÍ/Breiðablik – 07:50 mín.

Margir hafa tjáð sig á samfélagsmiðlinum Twitter eftir að Stjarnan greindi frá samningi sínum við Gunnar Ólafsson, þar á meðal er Ragna Margrét Brynjarsdóttir, fyrrverandi landsliðskona og leikmaður Stjörnunnar. Ragna Margrét lagði skóna á hilluna eftir farsælan feril en hefur áður látið í ljós óánægju sína með þá ákvörðun Stjörnunnar að draga kvennaliðið úr keppni.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert