Haukur á sjúkralistanum

Haukur Helgi Pálsson
Haukur Helgi Pálsson mbl.is/Hari

Haukur Helgi Pálsson, landsliðsmaður í körfuknattleik, leikur líklega ekki næstu fimm vikurnar eftir að hafa meiðst í leik á Spáni í gær. 

Haukur mun hafa rifið vöðva í læri samkvæmt því sem félag hans, Andorra, hefur látið frá sér á samfélagsmiðlum. Er talið að hann verði fimm vikur að jafna sig. 

Haukur hafði byrjað vel á Spáni en deildakeppnin er nýhafin. Skoraði til að mynda 13 stig og gaf 5 stoðsendingar gegn Unicaja Málaga í gær. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert