Ingi Darvis og Nevena Reykjavíkurleikameistarar

Ingi Darvis Rodriguez.
Ingi Darvis Rodriguez. Ljósmynd/BTÍ

Borðtennismót Reykjavíkurleikanna 2023 fór fram í TBR-Íþróttahúsinu í Laugardal 4. febrúar 2023 í umsjón Borðtennisdeildar Víkings.  

Mótið heppnaðist mjög vel og var um mjög marga spennandi og góða leiki að ræða.  

Góðir gestir frá Frakklandi léku á mótinu ásamt leikmönnum frá Rúmeníu, Póllandi, Þýskalandi og Slóvakíu. Yfirdómari mótsins var Árni Siemsen.

Í karlaflokki léku í undanúrslitum Ingi Darvis Rodríguez úr Víkingi og Frakkinn Hamidou Sow. Leikar fóru þannig að Ingi Darvis sigraði eftir hörkuleiki, 4:1 (11:7, 5:11, 11:5, 17:15, 13:11).

Í hinum undanúrslitaleiknum lék Quentin Praduelle frá Frakklandi gegn Bedö Norbu frá  Rúmeníu/KR. Leikar fóru þannig að Praduelle sigraði örugglega, 4:0 (11:4, 11:1, 11:4 og 11:2).

Úrslitaleikinn léku því Ingi Darvis gegn Praduelle. Um hörkuleik og góðan úrslitaleik var að ræða þar sem Ingi Darvis lék mjög vel og sigraði, 4:0 (11:8, 11:9, 11:5 og 11:8).

Nevena sigraði örugglega

Í kvennaflokki léku í undanúrslitum Nevena Tasic úr Víkingi gegn Önnu Manezak frá Póllandi /HK. Nevena sigrað örugglega, 4:0 (11:5, 11:5, 11:7 og 11:4).

Í hinum undanúrslitaleiknum lék Stella Karen Kristjánsdóttir úr Víkingi gegn Önnu Sigurbjörrnsdóttur úr KR. Leikar fóru þannig að Stella sigraði, 4:0 (11:4, 11:8, 11:1 og 11:7).

Úrslitaleikinn léku því Nevena og Stella, þar sem Nevena sigraði örugglega, 4:0 (11:4, 11:5, 11:3 og 11:5).

Úrslitin á mótinu:

Einliðaleikur karla:

1. Ingi Darvis, Víkingi

2. Quentin Praduelle, Frakklandi

3.-4. Hamidou Sow, Frakklandi

3.-4.  Bedö Norbu, KR

Einliðaleikur kvenna:

1. Nevena Tasic, Víkingi

2. Stella Karen Kristjánsdóttir, Víkingi

3.-4. Anna Sigurbjörnsdóttir, KR

3.-4. Anna Manezak, HK

Ingi Darvis Rodriguez og Nevena Tasic.
Ingi Darvis Rodriguez og Nevena Tasic. Ljósmynd/BTÍ
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert