Íslandssjóðir hf. og VÍB, eignastýringarþjónusta Íslandsbanka, hafa gengið frá samkomulagi um að Íslandssjóðir taki yfir eignastýringu verðbréfasafna fyrir einkabankaþjónustu VÍB. Breytingarnar eru liður í almennum skipulagsbreytingum á starfsemi félagsins í ljósi aukinna umsvifa þess.
Sú starfseining sem sinnt hefur þessari þjónustu innan VÍB flyst yfir og sameinast safnastýringu Íslandssjóða. Samhliða verða gerðar breytingar á starfsemi Íslandssjóða sem felast í að efla og skerpa stefnu lykileininga félagsins, sjóðastýringar og safnastýringar. Á sama hátt verður hlutverk framkvæmdastjóra skýrt og eflt við að sinna innra eftirliti, gæðamálum, samskiptum við eftirlitsaðila og stjórn og stefnumótandi verkefnum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsbanka.
Í tengslum við breytingarnar hefur Haraldur Örn Ólafsson verið ráðinn framkvæmdastjóri Íslandssjóða hf. Haraldur Örn er hæstaréttarlögmaður og hefur sérhæft sig í löggjöf fjármagnsmarkaðarins. Hann hefur víðtæka reynslu af störfum á fjármálamarkaði og hefur síðustu ár starfað á lögfræðisviði Íslandsbanka þar sem hann hefur unnið náið með yfirstjórn Íslandssjóða sem lögfræðilegur ráðgjafi.
Áður starfaði hann sem sérfræðingur hjá viðskiptaráðuneytinu á sviði fjármagnsmarkaðar þar sem hann m.a. var formaður í vinnuhóp sem vann að frumvarpi til núgildandi verðbréfaviðskiptalaga og kauphallarlaga. Þá hefur hann meðfram störfum sínum hjá Íslandsbanka setið í nefndum og starfshópum um breytingar á fjármálalöggjöfinni svo sem lögum um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði.
Haraldur Örn mun taka við starfi framkvæmdastjóra félagsins í september næstkomandi. Núverandi framkvæmdastjóri, Agla E. Hendriksdóttir, mun gegna starfi framkvæmdastjóra fram að þeim tíma en mun svo leiða sjóðastýringarstarfsemi félagsins. Hún mun jafnframt verða staðgengill framkvæmdastjóra.