Mikil uppsveifla hefur orðið í komum erlendra ferðamanna til ríkja Evrópusambandsins samkvæmt frétt bandaríska viðskiptablaðsins Wall Street Journal.
Þannig hafi 7,7 milljónir ferðamanna frá ríkjum utan sambandsins heimsótt Spán í júlí sem er metaðsókn. Aukningin er 4,4% miðað við sama tíma í fyrra.
Þá var aukningin í Frakklandi 2,2% samanborið við sama tíma í fyrra. Hins vegar hafi aðsókn ferðamanna frá öðrum ríkjum Evrópusambandsins dregist saman.