Ekki annað að gera en setja búin í þrot

mbl.is

„Ef kröfuhafarnir ná ekki að ljúka nauðasamningum er ekki annað að gera en að fara með búin í gjaldþrot,“ sagði Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra á ársfundi Seðlabankans í gær.

Gagnrýndi hann hvað gömlu bankarnir væru búnir að vera lengi í slitameðferð, eða í meira en fimm ár. Sagði hann líftíma slitabúanna ekki geta verið „endalausan“, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Dæmi væru um erlendis, til að mynda í Bandaríkjunum, að þau fengju aðeins frest til þriggja ára til að ljúka slitum, sem hægt væri að framlengja í fimm ár við „sérstakar aðstæður“.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK