Tilskipun ekki innleidd með réttum hætti

Höfuðstöðvar Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) eru í Brussel í Belgíu.
Höfuðstöðvar Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) eru í Brussel í Belgíu.

Íslensk stjórnvöld hafa ekki innleitt tilskipun um endurskipulagningu og slitameðferð lánastofnana með fullnægjandi hætti að mati Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA). Stofnunin sendi frá sér rökstutt álit í dag þar sem þetta kemur fram.

Tilskipunin (2001/24/EB) fjallar um endurskipulagning eða slitameðferð lánastofnana innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES). Samkvæmt tilskipuninni ræðst endurskipulagningin af þeirri málsmeðferð, lögum og reglum sem gilda heimaríkinu, því ríki þar sem lánastofnunin er skráð.

Tilgreindar eru í tilskipuninni ákveðnar undantekningar frá þessari reglu og mat ESA er að þrjú undantekningarákvæði hafi ekki verið rétt innleidd. „Eitt þeirra tiltekur rétt kröfuhafa til að halda því fram að endurskipulagningin eigi að fara fram samkvæmt lögum annars EES ríkis en heimaríkisins. Hin tvö varða greiðslujöfnunarsamninga og rétt til skuldajafnaðar.“

Rökstutt álit ESA er annað þrepið í samningsbrotamáli gegn íslenska ríkinu. Verði ekki brugðist við innan tveggja mánaða getur ESA vísað málinu til EFTA-dómstólsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK