Bréf í Icelandair hækka lítillega

Hlutabréfaverð í Icelandair hefur hækkað aðeins það sem af er degi en bréf í félaginu hríðféllu í gær. Það sem af er degi hafa bréfin hækkað um 2,19 prósent í 279 milljóna króna viðskiptum. Er gengi bréfanna nú 9,78 en lokagengi bréfanna í gær var 9,57.

Alls lækkuðu bréf í Icelandair um 24,65 prósent í gær eftir að félagið sendi frá sér svarta afkomuviðvörun á sunnudagskvöld þar sem afkomuspáin var lækkuð um 30 prósent frá fyrri spá. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK