Tileinka árið 2020 nýsköpun

Á myndinni eru, frá vinstri, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, Eliza …
Á myndinni eru, frá vinstri, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, Eliza Reid forsetafrú, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Guðrún Hafsteinsdóttir formaður SI og Helgi Hjálmarsson, framkvæmdastjóri Völku. Ljósmynd/Birgir Ísleifur Gunnarsson

Ár nýsköpunar 2020 var sett með formlegum hætti í húsakynnum hátæknifyrirtækisins Völku í dag, þegar Eliza Reid forsetafrú afhjúpaði myndmerki sem sýnir ljósaperu sem er alþjóðleg táknmynd nýsköpunar og Ísland staðsett inni í perunni, þar sem kraftar nýsköpunar flæða um allt land.

Með því að tileinka árið 2020 nýsköpun vilja Samtök iðnaðarins leggja sitt af mörkum til að vekja athygli á mikilvægi nýsköpunar fyrir framfarir í íslensku atvinnulífi, samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningu frá samtökunum.

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir í tilkynningu að samtökin vilji hvetja til nýsköpunar og til þess að hugvit verði virkjað í auknum mæli til þess að drífa vöxt framtíðar.

„Við viljum horfa á nýsköpun í sínum víðasta skilningi hvort heldur er hjá sprotafyrirtækjum sem eru að taka sín fyrstu skref eða hjá rótgrónum fyrirtækjum. Á árinu verða fjölmargir viðburðir þar sem fjallað verður um nýsköpun frá ýmsum hliðum en með því hvetjum við til frekari nýsköpunar hér á landi enda getur nýsköpun skapað fyrirtækjum forskot í samkeppni, skapað verðmæti og störf svo ekki sé minnst á að með nýsköpun leysum við helstu áskoranir framtíðarinnar um leið og við styrkjum samkeppnishæfnina.

Atvinnulífið, stjórnvöld og samfélagið allt þurfa að taka höndum saman og efla nýsköpun því þannig gerum við Ísland að nýsköpunarlandi,“ segir Sigurður í tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK