Vonar að Icelandair spjari sig án ríkisábyrgðar

Bjarna þykir „það tíðindum sæta, í alþjóðlegu samhengi, að Icelandair …
Bjarna þykir „það tíðindum sæta, í alþjóðlegu samhengi, að Icelandair [hafi] ekki þurft að leita á náðir ríkissjóðs fyrr og ekki með meira afgerandi hætti“. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fari allt á besta veg mun Icelandair ekki þurfa að nýta sér ríkisábyrgð sem stendur til að veita félaginu, skrifar Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra í færslu á Facebook. Hann bindur vonir við að Icelandair spjari sig án ríkisábyrgðar. 

Bjarna þykir „það tíðindum sæta, í alþjóðlegu samhengi, að Icelandair [hafi] ekki þurft að leita á náðir ríkissjóðs fyrr og ekki með meira afgerandi hætti. Ýmis stærri og umsvifameiri flugfélög í Evrópu [hafi] t.d. nú þegar þurft að leita til sinna stjórnvalda um lán eða hlutafé og mér [finnst] þetta bera glöggt vitni um styrk Icelandair,“ skrifar Bjarni. 

Síðust inn og fyrst út

Ef allt fer á besta veg mun félagið ekki þurfa að nýta sér þetta úrræði. En ef til þess kemur hef ég lýst því þannig að við ætlum okkur að vera síðust inn og fyrst út. Ég bind vonir við að Icelandair spjari sig án þess,“ skrifar Bjarni.

Hann segir að ríkisábyrgð á lánalínum til Icelandair sé ætlað að stuðla að því að fullnægjandi árangur geti náðst í fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins.

„Og að tryggja að það hafi burði til að takast á við áskoranir, jafnvel þótt áhrif heimsfaraldursins vari lengur en nú er gert ráð fyrir. Hugsunin er sú að innlend ferðaþjónusta og tengigeta Keflavíkurflugvallar geti tekið hratt við sér þegar fólk fer að ferðast aftur í einhverjum mæli. Með ríkisábyrgð á lánalínum til Icelandair erum við því að skapa grundvöll að kröftugri viðspyrnu fyrir innlenda ferðaþjónustu og efnahagslífið í heild.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Loka