Kvika og TM hefja viðræður um sameiningu

Kvika banki og TM.
Kvika banki og TM. Samsett mynd

Í dag samþykktu stjórnir Kviku banka og TM að hefja viðræður um sameiningu félaganna. Forsendur viðræðna byggjast á því að TM verði dótturfélag Kviku banka og að Lykill fjármögnun hf., núverandi dótturfélag TM, sameinist Kviku banka. 

Þá er gert ráð fyrir að hluthafar TM fái sem endurgjald fyrir hlutabréf sín í TM 55% hlut í sameinuðu félagi miðað við útgefna hluti félaganna í dag.

Háð samþykki eftirlitsaðila og hluthafa

Fram kemur í tillkynningu að viðræðurnar munu fara fram á næstu vikum, ásamt því sem gagnkvæmdar áreiðanleikakannanir verða framkvæmdar. Þar sem bæði félög búa við viðvarandi upplýsingaskyldu sem útgefendur skráðra verðbréfa er ekki gert ráð fyrir að sú vinna taki langan tíma. 

Væntanleg sameining er háð samþykki eftirlitsaðila og hluthafa beggja félaga.

Stjórnir félaganna telja raunhæft að ná fram eins milljarðs króna kostnaðarsamlegð með sameiningu félaganna, án viðskipta- og einskiptiskostnaðar. Gert er ráð fyrir að stærsti hluti kostnaðarsamlegðar komi til vegna hagkvæmari fjármögnunar.

Höfnuðu að viðræður væru í gangi

Í byrjun júlí sendu Kvika og TM frá sér yfirlýsingar þar sem því var hafnað að viðræður væru í gangi um samruna félaganna. Í yfirlýsingunni kom einnig fram að slíkar viðræður væru ekki fyrirhugaðar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK