Atli Þór ráðinn framkvæmdastjóri Íslandsdeildar TI

Atli Þór Fanndal er nýr framkvæmdastjóri samtakanna.
Atli Þór Fanndal er nýr framkvæmdastjóri samtakanna. Ljósmynd/Aðsend

Atli Þór Fanndal, ráðgjafi og fyrrverandi blaðamaður, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Transparency International, í hlutastarfi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum.

Samtökin Transparency International voru stofnuð árið 1992 og hafa um langa hríð verið ein stærstu alþjóðlegu samtökin sem vinna að heilindum í stjórnsýslu og viðskiptalífi og berjast fyrir lagalegum úrræðum og vitundarvakningu til að draga úr spillingu.

Atli Þór tekur við framkvæmdastjórastarfinu af Árna Múla Jónassyni.

„Íslandsdeild vill þakka Árna fyrir ómetanlegt framlag til uppbyggingar Íslandsdeildar Transparency Iceland á undanförnum mánuðum. Árni er framkvæmdastjóri Landssamtakanna Þroskahjálpar og starfinu hjá TI hefur Árni sinnt meðfram störfum fyrir Þroskahjálp. Aukin verkefni og umsvif Íslandsdeildar kalla eftir hærra starfshlutfalli framkvæmdastjóra. Árni Múli starfar áfram hjá Íslandsdeild sem lögmaður Transparency,“ segir í tilkynningunni og jafnframt:

„Atli Þór Fanndal hefur víðtæka reynslu af fréttamennsku, verkefnastjórnun og ráðgjöf er varðar stefnumótun og stjórnmál. Atli hefur undanfarið leitt uppbyggingu Geimvísinda- og tækniskrifstofunnar Space Iceland meðfram pólitískum ráðgjafastörfum erlendis. Hann starfaði áður sem blaðamaður meðal annars á DV, Reykjavík vikublaði og Kvennablaðinu auk BBC, The Telegraph, CBC og Der Freitag svo dæmi séu nefnd. Atli starfaði um tíma á skrifstofu Annette Brooke, þingkonu Mið-Dorset og Norður-Poole og síðar við pólitíska ráðgjöf hjá Pírötum vegna sveitarstjórnarkosninga 2018. Atli leiðir uppbyggingu Space Iceland og mun áfram starfa þar meðfram störfum fyrir Íslandsdeild.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK