Rofar til í kjölfar rifrildisins um Rogan

Joe Rogan stýrir einu vinsælasta hlaðvarpi heims. Spotify greiddi háa …
Joe Rogan stýrir einu vinsælasta hlaðvarpi heims. Spotify greiddi háa upphæð til þess að hlaðvarpið væri einungis aðgengilegt í veitu fyrirtækisins. AFP

„Ég hef tekið eftir því á samfélagsmiðlum að margir eru búnir að skipta frá Spotify yfir á aðrar veitur. Það er bara besta mál og ég sé ekkert vandamál við þessar umræður og deilur. Ef eitthvað er þá held ég að þetta gæti orðið upphafið að því að veitnamarkaðurinn verði aðeins heilbrigðari,“ segir Eiður Arnarsson, tónlistarmaður og framkvæmdastjóri Félags hljómplötuframleiðenda.

Mikil umræða hefur verið um stöðu streymisveitunnar Spotify síðustu daga eftir að Neil Young óskaði eftir því að öll tónlist hans yrði fjarlægð af veitunni. Sú ósk var sett fram eftir að ekki var orðið við kröfu hans um að hlaðvarp Joes Rogans yrði tekið þar út en hann er sakaður um að dreifa falsfréttum um bóluefni við kórónuveirunni.

Rogan er einn þekktasti hlaðvarpsstjórnandi í heimili með 11 milljónir hlustenda á hvern þátt en Spotify gerði 100 milljón dollara samning við hann árið 2020 um einkarétt á birtingu. Sú staðreynd hefur komið við kaunin á mörgum tónlistarmönnum sem telja sig ekki bera mikið úr býtum í viðskiptum við Spotify.

Neil Young setti Spotify afarkosti. Hann eða Joe Rogan.
Neil Young setti Spotify afarkosti. Hann eða Joe Rogan. AFP

Hafi villst af brautinni

Spotify er vinsælasta tónlistarveita heims með 381 milljón notenda í hverjum mánuði og 172 milljónir áskrifenda. Á Íslandi hafa allt að 98% alls streymis verið í gegnum Spotify síðustu misseri.

Margir neytendur virðast ætla að nýta sér þessa umræðu um Spotify sem spark í rassinn til að róa á önnur mið. Þær tvær veitur sem flestir virðast sýna áhuga eru Apple Music og Tidal. Sú síðarnefnda hefur einmitt nýverið tekið upp svokölluð Fan Centered Royalties undir áskriftarleiðinni Tidal hifi plus.

„Sumum finnst að Spotify hafi villst af brautinni og ég deili þeirri skoðun. Ég sá að bæði Tidal og Apple Music voru með Neil Young og Joni Mitchell á forsíðunni hjá sér í morgun. Eðlilega, svona virkar samkeppnin,“ segir Eiður.

Joni Mitchell
Joni Mitchell AFP

Minni listamenn græða

Hann bendir þó á að flestar stærstu veiturnar greiði sama hlutfall af tekjum til tónlistarrétthafa, eða 70%. Skiptingin er svo ákveðin „pro rata“ eða þannig að hvert spilað lag fær skerf í samræmi við hlut sinn í heildinni. Það þýðir að því fleiri sem spilanirnar eru, þeim mun lægri greiðsla fæst fyrir hverja spilun.

Hins vegar getur áðurnefnd nýbreytni hjá Tidal bætt umhverfið að mati Eiðs. „Það hafa margir kallað eftir þessari aðferð og flestum þykir hún sanngjörn. Þá fer þitt áskriftargjald einfaldlega þangað sem þú ert að hlusta en dreifist ekki á stóra listamenn á borð við Billie Eilish. Peningaslóðin líkist því sem var þegar þú fórst út í búð og keyptir þér plötu.“

Eiður segir að gerðar hafi verið rannsóknir á því fyrir hverja það komi sér vel að taka upp umrætt greiðslufyrirkomulag. „Það eru annars vegar „lókal“ listamenn í hverju landi fyrir sig og hins vegar listamenn sem eru aðeins fyrir utan meginstrauminn. Þeir sem hlusta mest hlusta á það vinsælasta og því renna peningarnir að stærstum hluta í þá átt í hefðbundna fyrirkomulaginu.“

Spotify reynir nú að feta sig áfram bæði sem streymisveita …
Spotify reynir nú að feta sig áfram bæði sem streymisveita fyrir tónlist og hlaðvörp. AFP

Lofar bót og betrun

Bæði Spotify og hinn umdeildi hlaðvarpsstjórnandi Joe Rogan hafa heitið bót og betrun í kjölfar þess storms sem ákvörðun Neils Youngs og Joni Mitchell hefur valdið. Um helgina tilkynnti Spotify að fyrirtækið ynni nú að því að bæta aðgengi að upplýsingum um kórónuveirufaraldurinn og koma upp viðvörunarmerkingum við þætti sem hafa hann til umfjöllunar.
Rogan hefur sömuleiðis lýst því yfir að hann muni bæta ráð sitt og leggja sig fram við að draga fram mismunandi skoðanir í þætti sínum. Hann þvertók þó fyrir það að deila misvísandi upplýsingum í þættinum. Rogan var harðlega gagnrýndur eftir að hann gaf gestum sínum leyfi til að spúa út samsæriskenningum um faraldurinn á dögunum. Um 11 milljónir hlusta að jafnaði á þætti hans.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK