Hvar er best að búa?

Viðskiptaráð hefur uppfært gagnvirka reiknivél sína á vefnum Hvar er best að búa með það að markmiði að auka gagnsæi um skattheimtu, gjöld og skuldsetningu á sveitarstjórnarstigi.

Í reiknivélinni gefst notendum kostur á að bera saman kostnað við að búa í sveitarfélögum landsins með því að slá inn upplýsingar um búsetu, fjölskyldusamsetningu, launatekjur og stærð húsnæðis.

Á vefnum má sjá yfirlit yfir skatta, gjöld og skuldir sveitarfélaganna miðað við gjaldskrár 2022. Einnig má bera saman niðurstöðurnar við landsmeðaltal og önnur sveitarfélög.

Í kynningu á reiknivélinni segir að tilgangur hennar sé að auka gagnsæi um skattheimtu, gjöld og skuldsetningu á sveitarstjórnarstigi.

„Markmið Viðskiptaráðs Íslands með útgáfu reiknivélarinnar er ekki að fullyrða að best sé að búa í einu sveitarfélagi og verst í öðru heldur að veita einstaklingum tækifæri til að bera sveitarfélögin saman með eigin forsendur í huga,“ segir á vefsíðunni.

„Það er margt sem ber að huga að þegar spurt er hvar sé best að búa en fólk kýs auðvitað ekki endilega að búa þar sem álögur eru lægstar. Gæði þjónustu skipta máli, hvaða atvinnutækifæri eru í boði og önnur gæði sem felast í því að búa á einum stað umfram annan. Vefurinn Hvar er best að búa er tól til þess að upplýsa íbúa um gjöld og álögur í sínu sveitarfélagi en í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga er hlutverk frambjóðenda einmitt að rökstyðja hvers vegna best geti verið að búa í sveitarfélagi þeirra.“

Hægt er að smella hér til að skoða reiknivélina og komast að því hvar reiknivélin segir að best sé fyrir þig að búa og hvernig greiðslur til þíns sveitarfélags skiptast niður.

Viðskiptaráð
Viðskiptaráð
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK