Tryggja sér átta milljarða króna fjármögnun

Eldur Ólafsson, forstjóri Amaroq Minerals.
Eldur Ólafsson, forstjóri Amaroq Minerals. Ljósmynd/Aðsend

Amaroq Minerals, auðlindafélag sem rannsakar og vinnur málma í suðurhluta Grænlands, hefur tryggt sér tæplega átta milljarða króna fjármögnun og er stefnan nú sett á skráningu á markað á Íslandi þann 1. nóvember.

Í tilkynningu frá félaginu segir að hlutafjáraukningu sé lokið þar sem félagið tryggði sér 30 milljónir punda sem jafnvirði um 4,9 milljarða króna, í lokuðu útboði. Hlutaféð var selt til innlendra og erlendra fjárfesta ásamt því að lykilstjórnendum og starfsfólki var gefinn kostur á að taka þátt í útboðinu.

Verður andvirði hlutafjáraukningarinnar notað til að hefja vinnslu í Nalunaq gullnámunni í Suður-Grænlandi á næsta ári ásamt því að rannsaka frekar vinnanlegt gullmagn í námunni. Þá verður fé einnig varið í rannsóknir á öðrum svæðum þar sem félagið hefur tryggt sér rannsóknarleyfi.

Amaroq og ACAM gerðu með sér samkomulag fyrr á árinu sem kveður á um að Amaroq stofni nýtt dótturfélag utan um leitarleyfi sín á Suður-Grænlandi þar sem ætla má að meirihluti vinnanlegra málma séu ekki gull heldur málmar eins og kopar, nikkel og fleiri.

Leggja fram 18 milljónir punda

ACAM mun leggja fram 18 milljónir punda fyrir 49% hlut í dótturfélaginu, en framlag Amaroq verður, auk vinnsluleyfanna, í formi aðstöðu á svæðinu, flutninga og kostnaðar við nýtingu á innviðum upp á um fimm milljónir punda.

Með hlutafjáraukningunni og samkomulaginu við ACAM hefur Amaroq tryggt sér fjármögnun sem nemur tæplega átta milljörðum króna. 

„Þessi hlutafjáraukning mun leika lykilhlutverk í því að ná frekari framþróun í eignasafni okkar á Grænlandi, þar sem við erum í leiðandi stöðu. Það verður sífellt skýrara að Grænland skipta sköpum í hagkerfi framtíðarinnar, en þar verður hægt að vinna mikið magn efnahagslega mikilvægra málma, sem verða lífsnauðsynlegir vestrænum ríkjum á næstu áratugum.

Með því að klára hlutafjáraukninguna og skráningu á íslenskan hlutabréfamarkað munum við geta haldið áfram framkvæmdum við Nalunaq námuna, sem er ein ríkasta gullnáma veraldar. Við munum einnig get hraðað rannsóknum okkar á öðrum leitarsvæðum þar sem finna má málma sem nauðsynlegir verða í orkuskiptum framtíðarinnar,“ er haft eftir Eldi Ólafssyni forstjóra Amaroq Minerals í tilkynningunni.  

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK