Icelandair og Turkish Airlines í samstarf

Samningurinn eykur framboð á tengiflugi.
Samningurinn eykur framboð á tengiflugi. Ljósmynd/Aðsend

Icelandair og Turkish Airlines undirrituðu í morgun samstarfssamning.

Með samningnum geta farþegar Icelandair frá Norður-Ameríku og Íslandi geta ferðast í austurátt með Turkish Airlines til Istanbul og farþegar Turkish Airlines geta ferðast frá fjölda áfangastaða meðal annars í Asíu og Miðausturlöndum í vesturátt með leiðakerfi Icelandair til Íslands og Kanada. 

Samningurinn var undirritaður í Istanbul fyrr í dag á aðalfundi IATA, alþjóðasamtaka flugfélaga.

„Samningurinn stóreykur framboð á þægilegum tengingum þar sem viðskiptavinir ferðast á einum farmiða og innrita farangurinn alla leið á lokaáfangastað,” segir tilkynningu.

Turkish Airlines var stofnað árið 1933 með fimm flugvélar í flota sínum. Félagið er hluti af Star Alliance-samstarfinu og flotinn samanstendur af 416 flugvélum. Félagið flýgur til 344 áfangastaða í 129 löndum. 

Ljósmynd/Aðsend

„Það er ánægjulegt að undirrita þennan samstarfssamning við Icelandair. Með samningnum viljum við auka úrval ferðamöguleika fyrir viðskiptavini okkar. Einnig erum við ánægð með að þessi samstarfssamningur við Icelandair mun skila miklum viðskiptalegum ávinningi til beggja flugfélaga,” segir Bilal Ekşi, forstjóri Turkish Airlines, í tilkynningunni.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, bætir við: „Það er spennandi að tilkynna Turkish Airlines, það flugfélag sem flýgur til flestra landa í heiminum, sem nýjasta samstarfsflugfélag okkar. Okkar stefna er að gera samstarfssamninga við flugfélög sem veita góða þjónustu og opna ný og spennandi ferðatækifæri. Með þessum nýja samningi tengjum við á milli leiðakerfa flugfélaganna og stóraukum ferðamöguleika fyrir viðskiptavini okkar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK