Föst bindiskylda lánastofnana hækkuð

Seðlabanki Íslands.
Seðlabanki Íslands. mbl.is/Ómar Óskarsson

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað á aukafundi sínum á þriðjudaginn að hækka fasta bindiskyldu lánastofnana úr 2% í 3% af bindigrunni.

Breytingin tekur gildi við byrjun næsta bindiskyldutímabils, 21. apríl.

„Ein grunnforsenda þess að unnt sé að reka sjálfstæða og trúverðuga peningastefnu er að Seðlabanki Íslands búi yfir öflugum gjaldeyrisforða. Hlutverk forðans er að draga úr áhrifum sveiflna í greiðslujöfnuði með hliðsjón af stefnu bankans í peninga- og gengismálum. Þá dregur öflugur gjaldeyrisforði úr líkum á því að fjármagnshreyfingar til og frá landinu raski fjármálastöðugleika,” segir í tilkynningu.

„Hann er auk þess öryggissjóður sem hægt er að grípa til þegar stór og óvænt áföll eiga sér stað sem raska gjaldeyrisöflun þjóðarbúsins. Slíkri tryggingu fylgir hins vegar kostnaður sem eykst eftir því sem vaxtamunur gagnvart útlöndum er meiri. Þessi kostnaður er að mestu leyti borinn af Seðlabankanum en aðrir innlendir haghafar njóta ábatans í formi hagstæðari vaxtakjara á alþjóðlegum fjármálamörkuðum.”

Fram kemur að ákvörðunin um hækkun bindiskyldunnar sé hluti af heildarendurskoðun Seðlabankans á vaxtakjörum sem helstu mótaðilar njóti í bankanum og hafi það að markmiði að dreifa betur kostnaði sem fylgi því að reka sjálfstæða peningastefnu og treysta sjálfbæra fjármögnun gjaldeyrisforða þjóðarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK