Hnúfubaki bjargað úr neti

Hnúfubaki var bjargað úr neti í Eyjafirði
Hnúfubaki var bjargað úr neti í Eyjafirði Ljósmynd/Freyr Antonsson

Hnúfubaki sem festist í net norður af Dalvík í Eyjafirði hefur verið bjargað. Hvalaskoðunarbátur varð var við hvalinn og gerði viðvart.

Ekki er talið að dýrið hafi verið lengi fast í netinu en þó voru komin sjáanleg lítilsháttar sár af völdum netsins á stirtlu og sporð, að því er segir í tilkynningu frá Matvælastofnun.

Netið var meðal annars vafið um sporð hvalsins.
Netið var meðal annars vafið um sporð hvalsins. Ljósmynd/Freyr Antonsson

Meðlimir viðbragðsteymis um hvali í neyð, þar sem Matvælastofnun, almannavarnadeild ríkislögreglu, Landhelgisgæsla Íslands, Umhverfisstofnun, Samband íslenskra sveitarfélaga, Háskóli Íslands og Hafrannsóknastofnun eiga fulltrúa, veittu viðbragðsaðilum á Dalvík ráðgjöf með tilliti til velferðar hvalsins og öryggis björgunaraðila við aðgerðir.

Starfsmaður hvalaskoðunarbátsins, sem einnig hefur töluverða reynslu á þessu sviði, fór ásamt björgunarsveitinni í Dalvík út á björgunarbát og skorið var á grásleppunótina þar til dýrið losnaði, samkvæmt tilkynningunni.

Hvalurinn virtist nánast leita eftir aðstoð að hans sögn og var samstarfsfús meðan á björgunaraðgerðum stóð. Dýrið virðist frískt og talið er að það nái sér fljótt eftir atvikið.

Ljósmynd/Freyr Antonsson
Viðbragsaðilar á Dalvík.
Viðbragsaðilar á Dalvík. Ljósmynd/Freyr Antonsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 256 kg
Grásleppa 149 kg
Samtals 405 kg
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet
Grásleppa 1.303 kg
Þorskur 303 kg
Samtals 1.606 kg
26.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 1.304 kg
Ýsa 696 kg
Steinbítur 171 kg
Keila 77 kg
Samtals 2.248 kg
26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 256 kg
Grásleppa 149 kg
Samtals 405 kg
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet
Grásleppa 1.303 kg
Þorskur 303 kg
Samtals 1.606 kg
26.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 1.304 kg
Ýsa 696 kg
Steinbítur 171 kg
Keila 77 kg
Samtals 2.248 kg
26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg

Skoða allar landanir »