Bylting á Ljósafellinu með Starlink

Starlink útvegar háhraðanet í gegnum gervihnetti SpaceX.
Starlink útvegar háhraðanet í gegnum gervihnetti SpaceX. Ljósmynd/SpaceX

Hægt er að fullyrða að bylting hafi orðið í samskiptatækifærum skipverjanna á Ljósafelli SU, en þar er nú að finna tengingu við Starlink sem skilar háhraða-interneti með aðstoð gervihnatta sem skotið er á loft af Space X sem er að stórum hluta í eigu auðkyfingsins Elon Musk.

„Löngum höfum við Ljósfellingar verið glíma við óstöðugt internet og símasamband, enda hefur skipið hingað til eingöngu verið búið 4G móttakara. Þegar lengra er haldið til veiða hefur þetta oft verið okkur mikill akkilesarhæll, og vísast til þeirra er stunda fjarnám,“ segir í færslu skipverjanna á Facebook-síðu þeirra.

„Nú hefur orðið á þessu bragarbót, og fjárfest hefur verið í Starlink búnaði á Ljósafell, og má segja að um mikla byltingu fyrir okkur i áhöfn skipsins sé að ræða. […] Þessi þjónusta og búnaður er nýr af nálini, og í stöðugri þróun en er samt sem áður komin það langt a leið að við náum internetsambandi hvar sem við erum staddir,“ segir í færslunni.

Móttakari fyrir Starlink hefur verið komið fyrir í kassa sem …
Móttakari fyrir Starlink hefur verið komið fyrir í kassa sem festur er á skipið. Ljósmynd/Pétur Kristinsson

Starlink heitir því að geta útvegað háhraða-internettengingu nánast hvar sem er í heiminum og hefur meðal annars verið mikilvægur hlekkur í baráttu Úkraínuhers gegn innrásarliði Rússa.

Þjónustan hefur verið í boði fyrir einstaklinga og fyrirtæki á Íslandi um nokkurt skeið en ekki er vitað hve útbreidd notkunin er á íslenskum fiskiskipum. Eitt er þó víst og það er að Starlink gæti skilað áhöfnum mun meiri tækifæri til að eiga í samskiptum við fjölskyldu og vini, finna afþreyingarefni, sinna námi og öllu öðru sem öflugt samskiptakerfi býður upp á.

Ljósafell að veiðum í Eyjafirði. Mynd úr safni.
Ljósafell að veiðum í Eyjafirði. Mynd úr safni. mbl.is/Hafþór
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »