Brim fjárfesir í vistvænum krapavélum

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, matvælaráðherra, Freyr Friðriksson og Guðmundur Kristjánsson á …
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, matvælaráðherra, Freyr Friðriksson og Guðmundur Kristjánsson á sýningunni í BArselóna á Spáni í dag. Ljósmynd/Kapp

Á alþjóðlegu sjávarútvegssýningunni í Barselóna í dag undirrituðu Freyr Friðriksson, forstjóri KAPP ehf., og Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, samning um kaup á OptimICE krapavélar frá KAPP sem komið verður fyrir um borð í skipunum Akurey AK-10 og Viðey RE-50.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

„Þetta er mikilvægt skref fyrir KAPP að hafa gert þennan samning við Brim og sýnir að sá búnaður sem KAPP framleiðir undir vörumerkinu OptimICE er að virka mjög vel þegar kemur að kælingu á hráefnum fyrir kröfuharðan sjávarútveg. Við erum í stöðugri sókn með okkar vörur og þjónustu, ásamt því að þróa nýjan búnað og lausnir fyrir sjávarútveginn. Við tökum þátt í þeirri vegferð sem íslensk sjávarútvegur er á í umhverfis- og rekstrarmálum þegar kemur að kælingu aflans,“ segir Freyr í tilkynningunni.

OptimICE er hraðkælikerfi sem framleiðir ískrapa úr sjó. Fljótandi ísskrapinn umlykur fiskinn og kælir hann hratt niður fyrir núll gráður og heldur hitastigi um mínus hálfa gráðu. Ískrapinn tryggir rakastig fisksins ásamt því að drena vel frá fiskinum sem viðheldur ferskleika hans.

„Þetta er mjög jákvætt skref fyrir Brim að landa þessum samningi. Við erum að mörgu leyti í fararbroddi þegar kemur að nýjungum og lausnum í sjávarútvegi. Ég tala nú ekki um þegar kemur að umhverfis- og rekstarþættinum sem spilar stórt hlutverk við þessa ákvarðanatöku,“ segir Guðmundur.

Nýrri krapavél frá Kapp verður komið fyrir í Akurey AK.
Nýrri krapavél frá Kapp verður komið fyrir í Akurey AK. mbl.is

Þessi nýja vél er fyrsta fjöldaframleidda krapavélin á heimsvísu sem notar koltvísýring sem kælimiðil. Öll hönnun, þróun og smíði á vélinni hefur verið hjá KAPP þar sem allar krapavélar eru framleiddar. Orkunýtni nýju vélarinnar er mun betri en í eldri vélum.

Freyr segir að mikil áhersla hafi verið hjá útgerðum hjá Íslandi og í Evrópu að minnka kolefnisspor sitt og er nýja vélin því byltingakennd í þeim aðgerðum. ,,Með nýju krapavélinni næst enn einn áfangi í að lækka kolefnissportið hjá sjávarútvegsfyrirtækjum um allan heim. CO2 kælikerfið er 100% vistvænt og hannað til að halda kolefnissporinu í algeru lágmarki en á sama tíma minnka rekstrarkostnað," segir Freyr.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »