Samherji kvartar yfir dómara og saksóknara

Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu að það hafi verið aðfinnsluvert …
Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu að það hafi verið aðfinnsluvert að Héraðsdómur Reykjavíkur hafi ekki búið yfir rannsóknargögnum þegar hann úrskurðaði að endurskoðunargögn skyldu afhent saksóknara. Samherji hefur nú kvartað yfir dómaranum. mbl.is/Þór

Samherji hefur beint kvörtun til nefndar um dómarastörf vegna vinnubragða Ingibjargar Þorsteinsdóttur héraðsdómara, en auk þess hefur fyrirtækið sent kvörtun til nefndar um eftirlit með lögreglu vegna Finns Þórs Vilhjálmssonar saksóknara.

Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í desember að KPMG skyldi afhenda saksóknara endurskoðunargögn er varða Samherja. Í kjölfarið kærði Samherji úrskurðinn til Landsréttar sem segir í úrskurði sínum frá 28. janúar aðfinnsluvert að að héraðsdómur hafi komist að niðurstöðu án þess að hafa haft viðeigandi rannsóknargögn undir höndum.

„Þetta þýðir í reynd að dómarinn í málinu, Ingibjörg Þorsteinsdóttir héraðsdómari, hafði engin sönnunargögn til stuðnings kröfu héraðssaksóknara þegar hún kvað upp úrskurð sinn,“ segir í tilkynningu á vef Samherja.

„Sú staðreynd að Finnur Þór Vilhjálmsson, fulltrúi héraðssaksóknara, lagði ekki fram nein sönnunargögn, þegar krafa hans um afhendingu gagna var tekin fyrir hjá Héraðsdómi Reykjavíkur, en hélt því engu að síður fram gegn betri vitund að slík gögn lægju frammi, hlýtur jafnframt að gefa tilefni til viðbragða hjá ríkissaksóknara,“ segir í tilkynningunni.

Á þessum grundvelli hafi verið kvartað yfir dómaranum og saksóknara og kveðst Samherji telja „mikilvægt og brýnt að koma upplýsingum á framfæri við þessar nefndir, með þar til bærum leiðum, því heilindi dómstóla og ákæruvalds þurfa að vera hafin yfir vafa“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 256 kg
Grásleppa 149 kg
Samtals 405 kg
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet
Grásleppa 1.303 kg
Þorskur 303 kg
Samtals 1.606 kg
26.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 1.304 kg
Ýsa 696 kg
Steinbítur 171 kg
Keila 77 kg
Samtals 2.248 kg
26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 256 kg
Grásleppa 149 kg
Samtals 405 kg
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet
Grásleppa 1.303 kg
Þorskur 303 kg
Samtals 1.606 kg
26.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 1.304 kg
Ýsa 696 kg
Steinbítur 171 kg
Keila 77 kg
Samtals 2.248 kg
26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg

Skoða allar landanir »