Rafræn skráning á veiði

Rafræn aflaskraning hefur verið tekin upp fyrir veiðisumarið 2023.
Rafræn aflaskraning hefur verið tekin upp fyrir veiðisumarið 2023. mbl.is/Ómar Óskarsson

Á komandi veiðisumri er gert ráð fyrir því að öll stang- og netaveiði á laxi og silungi hér á landi verði skráð rafrænt. Hafrannsóknastofnun hefur í samstarfi við Fiskistofu opnað aðgang fyrir rafræna skráningu á veiði og er hægt að nálgast skráningarform í gegnum vafra á slóðinni https://veidibok.hafogvatn.is/. Aðgangur að skráningakerfinu er gjaldfrjáls og verður hægt að framkvæma með nettengdum tölvum og snjalltækjum.

Í tilkynningu frá Hafrannsóknastofnun segir að með opnun rafrænnar skráningar verði hin hefðbundna skráning veiði í veiðibækur aflögð og verða veiðibækur því ekki sendar til veiðiréttarhafa í ár. Í undantekningartilfellum, þar sem rafrænni skráningu verði ekki viðkomið, sé hægt að óska eftir hefðbundnum veiðibókum til skráninga yfir veiðitíma, en veiðitölur verði síðan skráðar og skilað rafrænt.

Skráning veiði er lagaskylda en í lögum segir að gera skuli skýrslu um veiði í sérhverju veiðivatni og netlögum sjávarjarða og hvíli skylda til skýrslugjafar á handhafa veiðiréttar og sérhverjum þeim er veiði stundar. Hafrannsóknastofnun segir að skráning lax- og silungsveiði hér á landi byggist á formi veiðibóka sem að stofni til sé frá árinu 1946. Skráning laxveiði sé almennt góð og kannanir sýni að 98% laxveiðinnar eru skráð í veiðibækur. Silungsveiði hafi ekki verið eins vel skráð eða um 40% á landsvísu og sé þar til nokkurs að vinna. Vonast sé til að skráning silungsveiði muni batna með tilkomu rafrænnar skráningar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Kauptu vikupassa

Lestu meira með vikupassa!

Fáðu þér vikupassa fyrir 2.185 kr. og þú færð aðgang að öllu efni úr blaði dagsins í dag og næstu 6 daga.

Kaupa vikupassa

Aðrar áskriftarleiðir »

Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.5.23 440,55 kr/kg
Þorskur, slægður 26.5.23 490,12 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.5.23 426,13 kr/kg
Ýsa, slægð 26.5.23 244,61 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.5.23 277,76 kr/kg
Ufsi, slægður 26.5.23 371,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.5.23 152,00 kr/kg
Gullkarfi 26.5.23 384,78 kr/kg
Litli karfi 15.5.23 10,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 14.5.23 192,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

29.5.23 Patrekur BA-064 Dragnót
Skarkoli 1.360 kg
Ýsa 253 kg
Sandkoli 87 kg
Þorskur 33 kg
Þykkvalúra 13 kg
Skrápflúra 10 kg
Grásleppa 8 kg
Ufsi 7 kg
Samtals 1.771 kg
29.5.23 Bergur VE-044 Botnvarpa
Ýsa 9.783 kg
Steinbítur 7.697 kg
Þorskur 1.226 kg
Karfi 192 kg
Samtals 18.898 kg
29.5.23 Vestmannaey VE-054 Botnvarpa
Steinbítur 14.784 kg
Ýsa 10.703 kg
Samtals 25.487 kg

Skoða allar landanir »

Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.5.23 440,55 kr/kg
Þorskur, slægður 26.5.23 490,12 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.5.23 426,13 kr/kg
Ýsa, slægð 26.5.23 244,61 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.5.23 277,76 kr/kg
Ufsi, slægður 26.5.23 371,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.5.23 152,00 kr/kg
Gullkarfi 26.5.23 384,78 kr/kg
Litli karfi 15.5.23 10,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 14.5.23 192,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

29.5.23 Patrekur BA-064 Dragnót
Skarkoli 1.360 kg
Ýsa 253 kg
Sandkoli 87 kg
Þorskur 33 kg
Þykkvalúra 13 kg
Skrápflúra 10 kg
Grásleppa 8 kg
Ufsi 7 kg
Samtals 1.771 kg
29.5.23 Bergur VE-044 Botnvarpa
Ýsa 9.783 kg
Steinbítur 7.697 kg
Þorskur 1.226 kg
Karfi 192 kg
Samtals 18.898 kg
29.5.23 Vestmannaey VE-054 Botnvarpa
Steinbítur 14.784 kg
Ýsa 10.703 kg
Samtals 25.487 kg

Skoða allar landanir »