Heiðruðu erlent fiskverkafólk á Dalvík

Erlent fiskvinnslufólk var heiðrað á Dalvík um helgina. Það hefur …
Erlent fiskvinnslufólk var heiðrað á Dalvík um helgina. Það hefur verið mikilvægur hlekkur í uppbyggingu fiskvinnslu í byggðarlaginu. Svanfríður Jónasdóttir (t.v.) afhenti viðurkenningu ásamt Guðna Th. Jóhannessyni (t.h.) forseta Íslands. Ljósmynd/Fiskisdagurinn mikli

Fiskidagurinn mikli á Dalvík sem haldinn var hátíðlegur síðastliðna helgi heiðraði að venju þá sem hafa með jákvæðum hætti haft áhrif á atvinnusögu Dalvíkurbyggðar og íslenskan sjávarútveg. Að þessu sinni var erlent fiskverkafólk heiðrað.

Fram kmeur í tilkynningu frá skipuleggjendum að fiskvinnslufólk af erlendum uppruna hafi farið að verða áberandi að á Dalvík upp úr aldamótum. „Þá höfðu miklar breytingar átt sér stað í útgerð og fiskvinnslu sem kölluðu á fleiri vinnufúsar hendur. Mörg þeirra er komu til starfa í sjávarútvegi á Dalvík ílengdust, sum komin í önnur störf og láta til sín taka á ýmsum sviðum. Fiskidagurinn mikli fagnar fjölbreytileikanum og því fólki sem komið hefur um langan veg til að taka þátt í atvinnulífi og samfélagi Dalvíkurbyggðar.“

Svanfríður Jónasdóttir, fyrrverandi bæjarstjóri Dalvíkurbyggðar, afhenti viðurkenningu vegna þessa og naut að þessu sinni aðstoðar Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands.

Áratuga sjómennska

Fiskidagurinn mikli hefur ekki verið haldinn um nokkurt skeið vegna kórónuveirufaraldursins og var því ákveðið að heiðra einnig þrjá einstaklinga fyrir árin 2022, 2021 og 2020.

Vegna ársins 2022 var Hartmann Kristjánsson heiðraður fyrir áratuga sjómennsku á ýmsum skipum og bátum sem gerðir hafa verið út frá Dalvík. „Hann hefur stundað flestan veiðiskap og varið starfsævinni á sjónum. Hartmann var lengi á Lofti Baldvinssyni EA-24 á síld í Norðursjó en fór jafnan að ókyrrast þegar voraði og tók þá frí til að sinna grásleppunni. Hann tók líka þátt í rækjuævintýrinu á Dalborg EA-317 en lengst var hann á Björgvin EA-311. Þar hætti hann upp úr aldamótum 2000, þá kominn hátt á sjötugsaldur. Smábátasjómaðurinn Hartmann hefur líka um árabil róið frá Dalvík á báti sínum, Valþóri EA 313,“ segir i tilkynningunni.

F.v. Svanfríður Jónasdóttir, Hartmann Kristjánsson og Guðni Th. Jóhannesson
F.v. Svanfríður Jónasdóttir, Hartmann Kristjánsson og Guðni Th. Jóhannesson Ljósmynd/Fiskisdagurinn mikli

Frumkvöðlar í japansviðskiptum

Sigurður Tryggvi Konráðsson hlaut heiðrun fiskidagsins mikla árið 2021. Hann stofnaði fjölskyldufyrirtækið Sólrúnu á Árskógsströnd ásamt föður sínum og elsta bróður árið 1961. Frá upphafi hefur verið rekin útgerð en fiskverkun var starfrækt til árins 2006 þegar henna var lokað en síðan hefur fyrirtækið starfrækt fiskmarkað á Árskógssandi.

„Frá 1970 til 1986 stunduðu Sólrúnarmenn hrefnuveiðar og má segja að Árskógssandur hafi um árabil verið höfuðstaður hrefnuveiða við Ísland. Þeir urðu einnig frumkvöðlar hér á landi í Japansviðskiptum með hrefnuafurðir. Fyrirtækið Sólrún hefur um árabil verið kjölfesta í atvinnulífi á Árskógssandi og gerir nú út tvo báta þaðan, Sólrúnu EA-151 og Særúnu EA-251.“

Sigurður sinnti skipstjórn um árabíl sem og stöðu stjórnanda í landi.

F.v. Svanfríður Jónasdóttir, Sigurður Tryggvi Konráðsson og Guðni Th. Jóhannesson.
F.v. Svanfríður Jónasdóttir, Sigurður Tryggvi Konráðsson og Guðni Th. Jóhannesson. Ljósmynd/Fiskisdagurinn mikli

Farsæll skipstjóri

Þá var Vigfús Jóhannesson skipstjóri heiðraður fyrir farsælan feril vegna ársins 2020. „Árið 1970 réðst Vigfús til Útgerðarfélags Dalvíkinga og árið 1974, þegar Björgvin EA-311 kom fyrstur skuttogara til Dalvíkur, varð Vigfús þar fyrsti stýrimaður og síðan skipstjóri árið 1977. Nafn Vigfúsar og togara með nafnið Björgvin varð samtengt lengi því árið 1988 varð hann skipstjóri á nýjum og glæsilegum Björgvin EA-311 og með það skip var hann til 2002.“

Vakin er athygli á því að Björgvin er enn gerður út frá Dalvík. „Vigfús átti einstaklega farsælan feril og sama áhöfn fylgdi honum í áratugi. Áhöfn Björgvins var heiðruð af hálfu Íslenskra sjávarafurða fyrir uppbyggingu gæðakerfis, góð vinnubrögð og vel unnin störf.“

F.v. Svanfríður Jónasdóttir,Vigfús Jóhannesson og Guðni Th. Jóhannesson.
F.v. Svanfríður Jónasdóttir,Vigfús Jóhannesson og Guðni Th. Jóhannesson. Ljósmynd/Fiskisdagurinn mikli
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 30.4.24 392,30 kr/kg
Þorskur, slægður 30.4.24 432,85 kr/kg
Ýsa, óslægð 30.4.24 189,09 kr/kg
Ýsa, slægð 30.4.24 117,75 kr/kg
Ufsi, óslægður 30.4.24 163,69 kr/kg
Ufsi, slægður 30.4.24 175,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 30.4.24 142,62 kr/kg
Litli karfi 28.4.24 7,72 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

1.5.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 1.000 kg
Keila 183 kg
Steinbítur 134 kg
Ýsa 105 kg
Karfi 13 kg
Ufsi 4 kg
Skarkoli 1 kg
Samtals 1.440 kg
1.5.24 Elley EA 250 Grásleppunet
Grásleppa 910 kg
Samtals 910 kg
1.5.24 Júlía Rán RE 747 Handfæri
Þorskur 727 kg
Ufsi 44 kg
Samtals 771 kg
1.5.24 Sæli BA 333 Lína
Hlýri 138 kg
Þorskur 103 kg
Ufsi 30 kg
Keila 29 kg
Ýsa 25 kg
Langa 14 kg
Karfi 10 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 353 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 30.4.24 392,30 kr/kg
Þorskur, slægður 30.4.24 432,85 kr/kg
Ýsa, óslægð 30.4.24 189,09 kr/kg
Ýsa, slægð 30.4.24 117,75 kr/kg
Ufsi, óslægður 30.4.24 163,69 kr/kg
Ufsi, slægður 30.4.24 175,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 30.4.24 142,62 kr/kg
Litli karfi 28.4.24 7,72 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

1.5.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 1.000 kg
Keila 183 kg
Steinbítur 134 kg
Ýsa 105 kg
Karfi 13 kg
Ufsi 4 kg
Skarkoli 1 kg
Samtals 1.440 kg
1.5.24 Elley EA 250 Grásleppunet
Grásleppa 910 kg
Samtals 910 kg
1.5.24 Júlía Rán RE 747 Handfæri
Þorskur 727 kg
Ufsi 44 kg
Samtals 771 kg
1.5.24 Sæli BA 333 Lína
Hlýri 138 kg
Þorskur 103 kg
Ufsi 30 kg
Keila 29 kg
Ýsa 25 kg
Langa 14 kg
Karfi 10 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 353 kg

Skoða allar landanir »