Fannst meðvitundarlaus eftir björgunartilraun

Eldsvoðinn um borð í Grímsnesi hefur verið gífurlegur og skemmdirnar …
Eldsvoðinn um borð í Grímsnesi hefur verið gífurlegur og skemmdirnar eftir því. Einn lést en annar úr áhöfn reyndi hvað hann gat að bjarga félaga sínum. Ljósmynd/RNSA

Skipverji á Grímsnesi GK 555 reyndi hvað hann gat til að bjarga skipsfélaga sínum þegar eldur kviknaði í stakkageymslu skipsins aðfaranótt 25. apríl á síðasta ári er það lá bundið við bryggju í Njarðvíkurhöfn. Sex af sjö manna áhöfn var flutt á sjúkrahús en einn var úrskurðaður látinn.

Einn var með reykeitrun og var honum haldið sofandi í rúma tvo sólarhringa en er á batavegi, en aðrir voru minna slasaðir, að því er fram kemur í skýrslu rannsóknanefndar samgönguslysa sem birt hefur verið í dag.

Voru allir sofandi

Þegar eldurinn kviknaði voru allir sofandi, fjórir aftur í skipinu og þrír fram í. Tveir voru saman í klefa aftur í skipinu en hinir tveir í eins manns klefum. Gengið var niður í alla klefana úr afturgangi skipsins sem lá frá matsal og stakkagangi stjórnborðsmegin yfir í bakborðsgang í gegn um rými sem í var niðurgangur í vélarrúm.

„Annar mannanna sem svaf í tveggja manna klefa vaknaði við hávaða og reyk. Hann vakti þann sem var með honum í klefa [og] vakti síðan þá sem voru í eins manns klefunum. Þeir voru fljótir að vakna og fóru upp stigann út í ganginn í átt að matsalnum. Þegar þeir litu út í stakkaganginn stjórnborðsmegin sáu þeir mikinn eld og reyk,“ segir í skýrslunni.

Þeim varð ljóst að ófært var orðið að fara upp í stýrishús en þangað var ekki hægt að sjá fyrir reyk. Þeir fóru því til baka og í gegnum rýmið þar sem gengið er niður í vélarrúm og yfir í bakborðsganginn. Stysta leiðin út þaðan er að fara aftur í skutrýmið og þaðan upp en þar sem þeir vissu af mönnum fram í skipinu og ákváðu þeir því að fara yfir milliþilfarið. Reykur var upp við loft en þeir komust undir hann.

Eldur kom upp í Grímsnesi GK-555 aðfaranótt 25. apríl.
Eldur kom upp í Grímsnesi GK-555 aðfaranótt 25. apríl. mbl.is/Kristinn Magnússon

Einn mannanna opnaði hurðina upp á efra þilfar en annar vakti mennina sem sváfu fram í skipinu. „Allir komust síðan upp á efra þilfar fram á skipinu og þaðan upp á bryggju. Þegar mennirnir komu upp á efra þilfar sáu þeir hvar sá sem vaknaði fyrstur var að koma upp um mannopið stjórnborðsmegin aftur á. Þeir gátu síðar bent reykköfurum á staðinn þar sem skipverjinn lá.“

Sá sem hafði vaknað fyrstur hafði ætlað á eftir þeim tveimur sem voru á leið upp frá káetunum en áttaði sig þá á því að sá sem svaf með honum í klefa var ekki vaknaður. Ákvað hann þá að snúa við og fór að vekja félaga sinn.

„Þegar þeir ætla upp stigann frá káetunum mætti þeim mikill reykur og eldur upp við loft. Þeir sneru við og gátu opnað neyðarlúgu sem er bakborðsmegin í aftasta klefanum og komist þar upp.“

Ljósmynd/RNSA

Hélt skipsfélaginn væri á eftir sér

Sá er vaknaði fyrstur fór þá aftur í skutrýmið og yfir stýrisvélakassa sem var fremst í rýminu fyrir miðju og var þá kominn að stiga upp í gegn um mannop upp á efraþilfar. Var hann sannfærður um að skipsfélagi sinn væri á eftir sér þar sem hann heyrði í honum þegar hann kallaði, en sá hann ekki enda var reykurinn á þessum tíma orðinn svartur þannig að engin leið var að sjá til.

„Skipverjinn fór upp á efraþilfar til að ná andanum og fór aftur niður en náði ekki til mannsins sem var niðri. Hann komst aftur upp á efra þilfar þar sem hann lagðist niður til að vera undir reyknum og bankaði í dekkið til að reyna að leiðbeina manninum. Þar fundu reykkafarar hann meðvitundarlausan.“

Ljósmynd/RNSA

Alelda á stuttum tíma

Tilkynnt var um eldinn rúmlega tvö og voru fyrstu björgunaraðilar slökkviliðs komnir á staðinn tuttugu mínútum seinna. Fóru reykkafarar um borð í skipið og fundu einn mann liggjandi meðvitundarlausan á efra þilfari þess.

Mikill eldur var í skipinu og varð það alelda á stuttum tíma eftir að þeir sex sem björguðust voru komnir á bryggju.

Fram kemur að ekki var hægt að hefja rannsókn á upptökum brunans fyrr en 27. apríl 2023 af öryggisástæðum eða þar til vettvangur hafði kólnað það mikið að hann var talinn öruggur. Reyndust eldsupptök vera í stakkageymslu og var talið að kviknað hafi út frá vettlingaþurrkara.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 5.5.24 413,22 kr/kg
Þorskur, slægður 5.5.24 531,37 kr/kg
Ýsa, óslægð 5.5.24 212,47 kr/kg
Ýsa, slægð 5.5.24 145,46 kr/kg
Ufsi, óslægður 5.5.24 156,30 kr/kg
Ufsi, slægður 5.5.24 192,08 kr/kg
Djúpkarfi 2.5.24 264,00 kr/kg
Gullkarfi 5.5.24 159,10 kr/kg
Litli karfi 2.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

6.5.24 Tóti NS 36 Handfæri
Ýsa 14 kg
Samtals 14 kg
6.5.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 416 kg
Þorskur 31 kg
Skarkoli 16 kg
Samtals 463 kg
6.5.24 Vigur SF 80 Lína
Þorskur 1.149 kg
Steinbítur 338 kg
Ufsi 50 kg
Ýsa 42 kg
Langa 11 kg
Karfi 3 kg
Samtals 1.593 kg
6.5.24 Aldís NS 73 Handfæri
Þorskur 762 kg
Samtals 762 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 5.5.24 413,22 kr/kg
Þorskur, slægður 5.5.24 531,37 kr/kg
Ýsa, óslægð 5.5.24 212,47 kr/kg
Ýsa, slægð 5.5.24 145,46 kr/kg
Ufsi, óslægður 5.5.24 156,30 kr/kg
Ufsi, slægður 5.5.24 192,08 kr/kg
Djúpkarfi 2.5.24 264,00 kr/kg
Gullkarfi 5.5.24 159,10 kr/kg
Litli karfi 2.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

6.5.24 Tóti NS 36 Handfæri
Ýsa 14 kg
Samtals 14 kg
6.5.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 416 kg
Þorskur 31 kg
Skarkoli 16 kg
Samtals 463 kg
6.5.24 Vigur SF 80 Lína
Þorskur 1.149 kg
Steinbítur 338 kg
Ufsi 50 kg
Ýsa 42 kg
Langa 11 kg
Karfi 3 kg
Samtals 1.593 kg
6.5.24 Aldís NS 73 Handfæri
Þorskur 762 kg
Samtals 762 kg

Skoða allar landanir »