„Þetta er miklu meira en námskynning; skrúfudagurinn hefur mikla sérstöðu. Þetta er líka hátíð eða nemamót þeirra sem hafa vél- og skipstjórnarmenntun og koma gjarnan hingað til að sýna sig og sjá aðra,“ segir Víglundur Laxdal Sverrisson, skólastjóri Skipstjórnar- og véltækniskóla Tækniskólans.
Skrúfudagurinn, nú sá 60., er nk. laugardag. Dagskrá í Sjómannaskólahúsinu við Háteigsveg í Reykjavík hefst kl. 13. Þar verður nám í skipstjórn og véltæknigreinum ýmiss konar kynnt auk þess sem fulltrúar ýmissa fyrirtækja og stofnana – líklegra vinnustaða nemenda – segja frá sínu. Þá nýtur alltaf vinsælda að mæta í kaffihlaðboðið eða fara upp í turn skólahússins þar sem er afar víðsýnt yfir borgina. Þá verður kynnt menntun í sjávarútvegi, þar sem fulltrúar frá Háskólanum á Akureyri, Fisktækniskólanum, VMA og víðar svara spurningum. Skip- og vélstjórnarhermar verða opnir almenningi og gestum gefst kostur á að spreyta sig í netagerð.
„Starfið hér er stöðugri þróun. Okkur er í mun að koma til móts við nemendur sem hér fá menntun til fjölbreyttra starfa. Nemendur í véltækni eru hér í dag um 170. Í skipstjórnarnámi eru um 200 manns; þar af 160 í fjarnámi, þá gjarnan jafnhliða störfum á hafi úti,“ segir Víglundur.
„Nám hér opnar möguleika. Vélstjórar geta alls staðar fengið vinnu; sjálf hef ég verið á sjó en vinn nú í smiðju jafnhliða námi. Þetta er áhugavert nám og störf sem stelpur sækja í vaxandi mæli,“ segir Herdís Ósk Andrésdóttir formaður skólafélags Vélskólans. sbs@mbl.is
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 26.4.24 | 405,57 kr/kg |
Þorskur, slægður | 26.4.24 | 307,20 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 26.4.24 | 200,44 kr/kg |
Ýsa, slægð | 26.4.24 | 78,36 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 26.4.24 | 100,96 kr/kg |
Ufsi, slægður | 26.4.24 | 133,49 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 26.4.24 | 163,13 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
26.4.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Þorskur | 9.511 kg |
Steinbítur | 5.003 kg |
Hlýri | 610 kg |
Langa | 165 kg |
Ýsa | 147 kg |
Ufsi | 95 kg |
Keila | 34 kg |
Karfi | 26 kg |
Skarkoli | 11 kg |
Samtals | 15.602 kg |
26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet | |
---|---|
Þorskur | 256 kg |
Grásleppa | 149 kg |
Samtals | 405 kg |
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.303 kg |
Þorskur | 303 kg |
Samtals | 1.606 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 26.4.24 | 405,57 kr/kg |
Þorskur, slægður | 26.4.24 | 307,20 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 26.4.24 | 200,44 kr/kg |
Ýsa, slægð | 26.4.24 | 78,36 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 26.4.24 | 100,96 kr/kg |
Ufsi, slægður | 26.4.24 | 133,49 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 26.4.24 | 163,13 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
26.4.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Þorskur | 9.511 kg |
Steinbítur | 5.003 kg |
Hlýri | 610 kg |
Langa | 165 kg |
Ýsa | 147 kg |
Ufsi | 95 kg |
Keila | 34 kg |
Karfi | 26 kg |
Skarkoli | 11 kg |
Samtals | 15.602 kg |
26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet | |
---|---|
Þorskur | 256 kg |
Grásleppa | 149 kg |
Samtals | 405 kg |
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.303 kg |
Þorskur | 303 kg |
Samtals | 1.606 kg |