Ellý Ármanns verður amma í febrúar

Ellý Ármannsdóttir verður amma í febrúar.
Ellý Ármannsdóttir verður amma í febrúar.

Ellý Ármannsdóttir spákona, þjálfari og húðflúrari verður amma í febrúar. Hún greinir frá því á facebooksíðu. 

„Langar að þakka þér frá mínum dýpstu hjartarótum góður guð fyrir að leyfa mér að verða amma. Þér að segja er ég gjörsamlega að farast úr spenningi. Mig langar mest að hraðspóla fram í febrúar þegar barnið dregur sinn fyrsta andardrátt. Ég reyni samt eins og ég get að halda aftur af mér í ömmu-tryllingnum. Mig langar helst að flytja inn á son minn og unnustu hans bara til að fá að vera með þeim og fylgjast með öllu sem þau eru að upplifa með litla kraftaverkið þeirra og segja þeim hvað ég upplifði þegar ég varð móðir og vera til staðar ef þau þarfnast mín,“ segir Ellý. 

Hún segir að móðurhlutverkið hafi breytt henni sjálfri mikið en sjálf á hún þrjú börn, tvo syni og eina dóttur. 

„Ég vil þakka þér svo mikið fyrir að halda í hönd mína og styðja mig í því sem ég er að takast á við á hverjum degi. Nærvera þín sér til þess að uppgjöf er ekki til í mínum heimi. Ósk mín er að vera fyrirmyndaramma sem er ekki fórnarlamb heldur sigurvegari sem lætur drauma sína rætast á hverjum einasta degi sama hvað á bjátar hvort sem það er að mála myndir, húðflúra fallega líkama eða spá í spil. Þakka þér fyrir að sleppa ekki takinu á mér því ég þarfnast þín. Þakka þér fyrir að minna mig á að vera ég sjálf og hlusta aldrei á gagnrýnisraddir eða eitthvað þarna úti sem slær mig út af laginu í vegferð minni. Ég treysti að þú standir mér áfram við hlið. Passaðu samt einstaklega vel strákinn minn og fallegu konuna hans sem gengur með barnið þeirra sem ég get ekki beðið eftir að hitta og elska. - Þín Ellý „bráðum amma“.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert