Fannst nafn sonarins minna á kynfæri

Amy Schumer á eitt barn.
Amy Schumer á eitt barn. AFP

Í maí árið 2019 kom fyrsta barn grínleikkonunnar Amy Schumer í heiminn og fékk barnið nafnið Gene Attell Fischer. Schumer greindi þó frá því í nýjum hlaðvarpsþætti sínum að hún hefði breytt nafni sonar síns. 

Sonurinn heitir áfram Gene en foreldrarnir hafa breytt millinafninu. 

„Vitið þið að það er formlega búið að breyta nafni barns okkar? Það er núna Gene David Fisher. Það var áður Gene Attell Fischer en við áttuðum okkur óvart á því að við hefðum nefnt son okkar „genital“. 

Með því að bera fram nafnið Gene Attell líktist nafnið enska orðinu „genital“ sem þýðir kynfæri á íslensku. 

Attellnafnið kom frá vini Schumer, Dave Attell. Foreldrarnir töluðu við hann áður en þau breyttu nafninu í David. Ber sonurinn núna millinafnið David eftir bæði vini og föður Schumer. Nafnið Gene er í höfuðið á Gene Wilder, grínista sem lést árið 2016.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert