Eurovision-barn á leiðinni

Jean-Karl Lucas og Ém­ilie Satt í Madame Monsie­ur eiga von …
Jean-Karl Lucas og Ém­ilie Satt í Madame Monsie­ur eiga von á barni. Ljósmynd/Twitter

Það verður engin Eurovision-keppni í ár en þrátt fyrir það bætist í hóp fólks sem tengist Eurovision á árinu. Frönsku Eurovision-hjónin Jean-Karl Lucas og Ém­ilie Satt eiga von á barni. Hjónin greindu frá komu erfingjans á samfélasgmiðlum í apríl. 

Hjónin skipa dúettinn Madame Monsie­ur sem flutti lagið Mercy í keppninni í Lissabon 2018. Í ítarlegri úttekt mbl.is fyrir keppnina 2018 kom fram að hjónunum hefði verið spáð góðu gengi. Lagið lenti þó í 13. sæti. 

Hjónin komu einnig að framlagi Frakka í fyrra í Tel Aviv. Þá söng Bilal Hassani lagið Roi en dúettinn Madame Monsie­ur samdi lagið ásamt Hassani. Hassani lenti í 16. sæti. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert