Sigga og Grétar tjúttuðu með Huldu og Ægi

Sigríður Beinteinsdóttir og Grétar Örvarsson, betur þekkt sem Sigga og Grétar í Stjórninni, dönsuðu með Ægi Þór Sævarssyni og móður hans Huldu Björk Svansdóttur. 

Mæðgin­in dansa með fræg­um alla föstu­daga en Ægir Þór er með vöðvarýrn­un­ar­sjúk­dóm­inn Duchenne. Í þetta skiptið fengu þau Siggu og Grétar í Stjórninni í tilefni af Eurovision söngvakeppninni. Stjórnin fór fyrir Íslands hönd í keppnina árið 1990 með lagið Eitt lag enn sem þau Sigga, Grétar, Ægir og Hulda dansa við hér í myndskeiðinu fyrir ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert