Eignaðist barn í leyni í apríl

Amber Heard
Amber Heard AFP

Leikkonan Amber Heard kom aðdáendum sínum í opna skjöldu í gærkvöldi þegar hún birti mynd af sér á Instagram með dóttur sinni sem staðgöngumóðir fæddi 8. apríl á þessu ári.

Heard er þekktust fyrir leik sinni í kvikmyndunum Pineapple Express og Aquaman. Hún var gift leikaranum Johnny Depp í þrjú ár en nú eru fimm ár síðan hún skildi við hann, en þau stóðu í löngum málaferlum sem Depp tapaði í byrjun þessa árs. Í dag er Heard í sambandi með kvikmyndagerðarkonunni Biöncu Butti.

Heard er í skýjunum með dótturina. „Ég er ákaflega spennt að deila þessum fréttum með ykkur. Fyrir fjórum árum ákvað ég að mig langaði að eignast barn og langaði að gera það á mínum eigin vegum. Fyrir okkur sem konur kann ég að meta þessa róttæku ákvörðun að huga að þessum grundarvallarþætti örlaga okkar. Ég vona að við komumst einn daginn á þann stað að það verði talið eðlilegt að eignast barn án þess að vera í sambandi við karlmann,“ skrifaði Heard.

Að lokum segir hún: „Nafnið hennar er Oonagh Paige Heard. Hún er byrjunin á því sem eftir er af lífi mínu.“ 

View this post on Instagram

A post shared by Amber Heard (@amberheard)


Frétt Mirror.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert