Sigrún Lilja og Reynir eiga von á barni

Sigrún Lilja Guðjónsdóttir og Reynir Hallgrímsson eiga von á barni.
Sigrún Lilja Guðjónsdóttir og Reynir Hallgrímsson eiga von á barni. Skjáskot/Instagram

Sigrún Lilja Guðjónsdóttir, oft kennd við Gyðja Collection og unnusti hennar Reynir Daði Hallgrímsson eiga von á barni. Sigrún sagði frá gleðifréttunum á samfélagsmiðlum í gær. Þetta er þeirra fyrsta barn saman.

Von er á lítilli stúlku og er hún væntanleg í desember á þessu ári. „Við Reynir erum ótrúlega hamingjusöm og spennt að tilkynna heiminum að við eigum von á lítilli prinsessu í desember,“ skrifar Sigrún á samfélagsmiðlum. 

Sigrún stofnaði ung hönnunarmerkið Gyðja Collection en hún rekur einnig líkamsmeðferðarstofuna The House of Beauty. 

Barnavefurinn óskar þeim innilega til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert