Leikjaborgin Tókýó

Sýndarveruleika-skemmtigarðarnir leyfa fólki að hverfa inn í ævintýraheim.
Sýndarveruleika-skemmtigarðarnir leyfa fólki að hverfa inn í ævintýraheim. Ljósmynd / Pixabay – Dongpung (FFCU)

Það er synd hve fáir Íslendingar hafa heimsótt Tókýó, en er samt ekki skrítið – Japan virðist jú svo óralangt í burtu. Þeir sem kynnst hafa japönsku höfuðborginni vita að þegar kemur að ævintýrum og upplifunum er hún enginn eftirbátur stórborga sem svo margir halda upp á, á borð við New York, London, París og Róm. Það er eins og möguleikarnir séu óþrjótandi og að í hverju húsasundi og skúmaskoti leynist mergjuð búð, framúrskarandi veitingastaður, eða stórmerkilegt musteri.

Á einu sviði kemst þó engin önnur borg kemst með tærnar þar sem Tókýó hefur hælana, og það er í leikjasölum og skemmtigörðum. Japanar virðast vera óforbetranlegir spennufíklar og leggja ómældan metnað í að smíða rússíbana og leiki fyrir sýndarveruleika, svo að leitun er að öðru eins úrvali skemmtigarða af öllum mögulegum gerðum.

Fuji-Q er algjörlega bandbrjálaður rússíbana-skemmtigarður. Eftir nokkrar salíbunur þar virðast …
Fuji-Q er algjörlega bandbrjálaður rússíbana-skemmtigarður. Eftir nokkrar salíbunur þar virðast aðrir rússíbanar eins og rennibraut í samanburði. Ljósmynd / Flickr – Nick Turner (CC)

Fuji-Q Highland

Allt áhugafólk um rússíbana ætti að fara, a.m.k. einu sinni á lífsleiðinni, í pílagrímsför til Fuji-Q Highland. Skemmtigarðurinn er við rætur Fuji-fjalls, og tekur um tvo tíma að komast þangað með lest frá Tókýó. Er sniðugast að ferðast til Fuji daginn áður, gista yfir nótt og halda svo í rússíbanana strax að morgni dags, því stundum er Fuji-Q lokað snemma – jafnvel strax kl. 17.

Ástæða er til að vara lesendur við að rússíbanar Fuji-Q eru í algjörum sérflokki og ekki ólíklegt að þeir teldust ólöglegir í Bandaríkjunum eða Evrópu, því svo mikill er hraðinn, kollsteypurnar og álagið á líkama og sál að fólk sem er veikt fyrir verður að taka fullt mark á viðvörunarskiltum og reglum garðsins.

Eins er ástæða til að vara við því að eftir nokkrar salíbunur í Fuji-Q munu aðrir skemmtigarðar virðast eins og róluvöllur í samanburði. Rússíbanarnir þar eru ekki bara kvikindislega hannaðir heldur líka nokkuð langir svo að þegar stigið er upp úr sætunum að ferðinni lokinni er hver fruma í líkamanum gegnsósa af adrenalíni. Þeir sem vilja reyna að róa taugarnar á leið upp á efsta punkt ógnvekjandi rússíbana geta reynt að dreifa huganum með því að njóta einstaklega fagurs útsýnisins yfir Fuji-fjall og nágrenni.

Þeir Mikki og Andrés valda aldrei vonbrigðum. Hér vakir stytta …
Þeir Mikki og Andrés valda aldrei vonbrigðum. Hér vakir stytta af Walt Disney og Mikka Mús yfir Disney-garðinum í Tokyo. Ljósmynd / Flickr – Othree (CC)

Tókýó Disneyland

Ef yngri heimshornaflakkarar eru með í för verður að heimsækja Mikka og Andrés. Garðurinn skiptist í tvo aðskilda en samliggjandi skemmtigarða: Disneyland og DisneySea. Í Disneylandi er bandaríski sjarminn allsráðandi og tækin höfða meira til yngstu gestanna, á meðan DisneySea er ögn fullorðins með draugahúsi og nokkrum drungalegum rússíbönum.

Sumum gæti þótt það skrítið að ferðast alla leið til SA-Asíu til að heimsækja bandarískan skemmtigarð en dagpartur í Disney-garði veldur aldrei vonbrigðum og gaman að sjá hvernig Japanarnir njóta Disney-heimsins með sínum hætti. Þannig má reikna með að sjá nokkra forfallna aðdáendur sem klæða sig sérstaklega upp fyrir heimsóknina og skreyta sig hátt og lágt með varningi tengdum sinni uppáhalds Disney-sögupersónu.

Þeir sem hafa heimsótt bandarísku Disney-garðanna ættu að kannast við mörg skemmtitækin, s.s. Pirates of the Caribbean, Splash Mountain og Space Mountain, en önnur tæki finnast hvergi annars staðar. Einn af hápunktum garðsins er í DisneySea, um ævintýri Sinbaðs: um er að ræða rólega bátsferð þar sem syngjandi dúkkur segja sögu sæfarans frækna og gæti virst frekar lítt spennandi upplifun á blaði, en Sinbað býr yfir einhverjum töfrum sem margir geta ekki staðist.

Ævintýri í sýndarveruleika

Sýndarveruleika-skemmtigarðar hafa sprottið upp hér og þar í Tókýó. Þar er erfitt að láta sér leiðast, og hægt að spila jafnt rólega leiki (s.s. fluguveiðihermi) yfir í taugatrekkjandi hrylling sem framkallar skelfingu lengst niður í dýpstu kima sálarinnar.

Sá sem þetta skrifar heimsótti á sínum tíma VR Zone Shinjuku, sem starfrækt var á vegum leikjaframleiðandans Bandai. Því miður hefur VR Zone Shinjuku núna hætt starfsemi, en er þó enn með útibú í Osaka. Er óhætt að mæla með ferð til Osaka (þar er m.a. Universal Studios skemmtigarður), og þá ómissandi að kíkja á VR Zone, en þeir sem halda sig við Tókýó ættu að skoða VR Park og Joypolis í Shinjuku-hverfi, og nýopnaða ninja-„skólann“ VR Ninja Dojo í Chiyoda.

Svefnbásarnir hjá First-Cabin eru snyrtilegir og smekklega hannaðir. Þar er …
Svefnbásarnir hjá First-Cabin eru snyrtilegir og smekklega hannaðir. Þar er hagkvæmt fyrir einstaklinga að gista en ef tveir eru að ferðast getur verið ódýrara að verja nóttinni á venjulegu hóteli. Svefnsvæðin eru kynjaskipt. Ljósmynd / First-Cabin

Hvar á að gista?

Allir sem heimsækja Japan ættu að prufa að gista a.m.k. eina nótt á svk. capsule-hóteli. Húsnæði er ekki ódýrt í Tókýó og verðlagið á hótelherbergjum eftir því, en hægt að fá huggulegt fleti og ágætis næði fyrir sanngjarnt verð á kapsúl-hótelunum þar sem gestir hafa sitt litla hólf til að sofa í.

First-Cabin (first-cabin.jp) tekur básaupplifunina upp á næsta stig með básum sem eru ögn rúmbetri en hjá öðrum hótelum af sama toga. Minni herbergin (business class) eru ekkert nema einbreið dýnan en þau stærri (first class) hafa eins og einn fermetra af auka gólfplássi þar sem gestir geta klætt klætt sig úr fötunum og geymt eina litla ferðatösku.

Hjá First-Cabin eru hæðirnar kynjaskiptar og hefur hver hæð sín salerni og sturtuherbergi til að fara í almennilegt japanskt bað. Má alla jafna finna huggulegan en lítinn bar við innganginn og matarsjálfsala ef maginn er tómur.

Fylgja þarf nokkrum reglum á First-Cabin, rétt eins og á öðrum básahótelum: hótelið skaffar sandala sem gestir verða að klæðast og á svefnsvæðunum má ekki heyrast neitt hljóð – ekki einu sinni lágvært samtal. Ekki er hægt að læsa básunum en í hverjum bás má finna box með lás þar sem geyma má verðmæti meðan skotist er frá. Börn undir 12 ára eru ekki velkomin, farangur er geymdur í töskuskápum eða farangursgeymslu við innritun, og oft má ekki vera í básunum yfir daginn á meðan þrifið er.

Hvernig kemstu til Japans?

Helsinki þykir góður tengiflugvöllur milli Keflavíkur og Tókýó og tekur flugið að meðaltali um 17,5 tíma með einni millilendingu. Algengt verð er um 135.000 kr. fram og til baka. Finna má ódýrara flug, en þá með fleiri millilendingum og mun lengri flugtíma. Þannig finnur Skyscanner t.d. flug með Finnair og Wizzair, með millilendingu í Varsjá og Helsinki, á tæplega 92.000 kr. og tekur ferðalagið þá nærri sólarhring aðra leið.

Íslendingar geta dvalið í Japan í allt að þrjá mánuði án vegabréfsáritunar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert